Skáksamband Íslands    

7. fundur stjórnar S.Í. - 4.9.03. kl. 18.10

Mætt: Lilja, Ásdís, Bragi, Ríkharður, Daði Örn, Haraldur Baldursson, Ingvar Þór.

1. Bréf og tilkynningar.

Svar frá T.R. v. Reykjavíkurskákmótið. Félagið hafnar ekki þátttöku en óskar eftir nánari upplýsingum um umfang og hugmyndir S.Í. um mótshaldið.

Bréf frá Arnari Gunnarssyni þar sem hann gefur ástæður fyrir brotthvarfi úr skákmótum í Pardubice og Olomouc. Ásdís svarar Arnari og gengur frá styrk- og áfangagreiðslu v. eins skákmóts kr. 30 þús. og kr. 100 þús. v. áfangagreiðslu.

Bréf v. móts í Rússlandi. Ekki áhugi fyrir málinu og fr.kv.stj. svarar erindinu með varaforseta.

Tilkynning um fund Evrópuskáksambandsins Bragi athugar hvort hann geti setið fundinn en hann verður haldinn samhliða EM landsliða.

2. Íslandsmót skákfélaga.

Bréf dags. 1.9.03. frá Skákf. Hróknum um Íslandsmót skákfélaga lagt fram. Leggur Hrókurinn til að stofnaður verði vinnuhópur um keppnina sem eigi að gera tillögur um uppstokkun á ÍS. Þá gerir Hrókurinn athugasemdir um að tvö lið frá sama félagi séu í sömu deild og hafi ennfremur ákveðið að afsala sér þátttökurétti í I. og II: deild v. B og C liðs.

Bragi og Daði Örn koma með tillögur um reglugerð um ÍS.

Lilja ætlar að ræða við hugsanlega styrktaraðila að ÍS. Þá var rætt um keppnisstað og fjölmiðlaumfjöllun.

Lagt fram bréf dags. 2.9.03. frá Skákfélaginu Hróknum um lögfræðiálit frá Árna Páli Árnasyni vegna reglna SÍ. um takmörkun á fjölda útlendinga í Íslandsmóti skákfélaga. Málinu frestað til næsta fundar.

3. Íslandsmót.

Hannes Hlífar Stefánsson er Íslandsmeistari í skák 2003 en hann hlaut 10 vinn. úr 11 skákum. Lilja Grétarsdóttir er Íslandsmeistari kvenna en Lenka Ptacnikova sigraði. Ákveðið að Ingvar Þór Jóhannesson og Sævar Bjarnason sem urðu jafnir í 3. sæti vinni sér báðir inn rétt til þátttöku í Landsliðsflokki 2004.

4. EM landsliða.

Bragi lagði fyrir fundinn tillögu um ferðakostnað landsliðsmanna, árangursþóknanir ofl. Þá var lagður fram listi með skákmönnum sem gefa kost á sér í landsliðið. Tilllaga um hlutfallsgreiðslur miðað við lengd móta til handa liðsmönnum og fararstjóra samþykkt. Ákveðið að velja liðið skv. FIDE stigum. Bragi gengur á listann. Samþ. að Bragi verði liðsstjóri.

5. HM barna og unglina.

Fjórir einstaklingar hafa gefið kost á sér sem fararstjórar á HM. Fimm keppendur verða lágmark sendir en verið er að athuga með aðra keppendur. Ákveðið að Helgi Ólafsson verði aðalfararstjóri. Ákvörðun um fleiri fararstjóra ekki tekinn á þessum fundi.

6. Önnur mál.

Rætt um væntanlegar stefnumörkunarfund SÍ. í Húsafelii 19.-20.9.

Menntaskólinn á Akureyri varð Norðurlandameistari í skák, en sveitin hlaut 11 vinn. af 16 og varð hærri á stigum en Svíþjóð.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið kl. 19.53.

Ríkharður Sveinsson.


 

 



 

 




 
Skáksamband Íslands :: Faxafen 12 :: 108 - Reykjavík :: s. 568-9141 :: fax: 568-9116 :: netfang: siks@simnet.is :: veffang: www.chess.is