Skáksamband Íslands    

16. fundur stjórnar S.Í. 5. feb. 2004 kl. 18.20.

Mætt: Stefán, Ásdís, Páll, Bragi, Ríkharður, Helgi, Haraldur Baldursson.

1. Bréf og tilkynningar.
Lagður fram samningur Icelandair og S.Í.
Lagt fram bréf frá Utanríkisráðuneytinu ásamt bréfi frá ræðismanni Íslands í Ísrael þar sem Íslendingum er boðið að senda u-20 lið til landskeppni í Ísrael. Málinu frestað.
Boð á HM 18 ára og yngri í Frakklandi 2005.
Boð á Ólympíumót 16 ára og yngri á Indlandi.
Lagt fyrir fundinn netpóstur frá Skákfélagi Akureyrar v. Íslandsmóts barna. Ásdís svarar erindinu.

2. Skákþing Íslands - landsliðsflokkur.
Ákveðið að Ríkharður verði skákstjóri og finnur hann með sér aðstoðarmenn. Ákveðið að öldungaflokkur verði háður samtímis landsliðsflokki. Keppt verður í sér flokki ef keppendur verða a.m.k. 8.

7 af 13 sem eiga rétt á þátttöku í landsliðsflokki hafa svarað jákvætt. Ákveðið að auglýsa eftir áhugasömum keppendum. Rætt um skákskýringar og beinar útsendingar.

3. Styrkbeiðni.
Sótt er um kr. 80.000 f.h. skáksveitar öldunga á EM öldunga. Samþykkt að veita kr. 60.000.- í styrk enda er hér um landslið að ræða. Skáksambandið mælist til að keppendur taki þátt í öldungaflokki á Skákþingi Íslands um páska.

4. Dómstóll S.Í.
Allir aðildar Dómstóls S.Í. utan einn, Ólaf H. Ólafsson, hafa lýst sig vanhæfa til að fjalla um kæru Hróksins dags. 2. jan. 2004. Stjórn S.Í. skipar Steingrím Gaut Kristjánsson (formaður) og Sigurð Georgsson, en Hlíðar Þór Hreinsson til vara í Dómstól S.Í. til að fjalla um kæruna.

5. Stefnumótun stjórnar.
Forseti kynnti til umræðu stefnumörkun sambandsins. Rætt um ýmis mál s.s. lagamál, móta-og kynningarmál.

6. Önnur mál.
Fundur verður haldinn í Svíþjóð á sama tíma og NM einstaklingskeppni. Haraldur situr fundinn.
Haraldur greindi frá því að nefndin um endurskoðun á reglum og reglugerð Íslandsmóts skákfélaga hyggst koma öll saman og ræða hugmyndir að breytingu á keppninni.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið kl. 20.06.
Ríkharður Sveinsson

 
Skáksamband Íslands :: Faxafen 12 :: 108 - Reykjavík :: s. 568-9141 :: fax: 568-9116 :: netfang: siks@simnet.is :: veffang: www.chess.is