Skáksamband Íslands    
15. fundur stjórnar S.Í. fimmtud. 8. jan. 2004 kl. 18.00.

Mætt: Stefán, Helgi, Daði, Lilja, Þorfinnur, Ríkharður, Ásdís, Páll, Bragi, Haraldur Bald.

1. Bréf og tilkynningar.
Samþykkt að T.G. haldi Íslandsmót unglingasveita taflfélaganna skv. erindi frá félaginu.

Erindi frá T.G. v. Íslandsmóts öldunga. Félagið býðst undan því að halda mótið. Málinu frestað.

Bréf frá Kasparov v. útgáfu bókar frá honum.

Lögð fram yfirlýsing frá Þorsteini Þorsteinssyni, Þráni Guðmundssyni og Einari S. Einarssyni v. skoðunar þeirra á 19. og 20. gr. 3 kafla laga S.Í. um Í.S.

Lagður fram úrskurður mótsstjórnar Í.S. d. 30.12.03 og kæra Hróksins á úrskurðinum d. 2.1.04.

2. Kæra Hróksins.
Kæran lögð fram og vísað til Dómstóls S.Í.

3. Íslandsmót um páska.
Orkuveita Reykjavíkur hefur lýst áhuga á að hýsa Íslandsmót um páska og styrkja mótshaldið. Samþykkt að Íslandsmótið verði haldið í Orkuveitunni, þ.e. Landsliðsflokkur, Íslandsmót kvenna, Áskorendaflokkur og Unglingaflokkur 1. - 12. apríl.
Tímamörk. 1 klst. og 40 mín + 30 sek. á leik fyrstu 40 leiki, 30 mín. + 30 sek. á leik til að ljúka. Ef menn eru jafnir eru tefldar 2 skákir 15 mín. + 10 sek. en síðan bráðabani 3 mín. + 10 sek. á leik.
Keppendum í Landsliðsflokki verður raðað í röð skv. íslenskum skákstigum, teflir 1 við nr. 9, 2 við nr. 10 o.s.frv. skv. útsláttarkerfi.
Tefldar verða 9 umferðir í Áskorendaflokki, engar atskákir. Verðlaun verða 490 þús. í Landsliðsflokki, kr. 70 þús. í kvennaflokki og kr. 45 þús. í Áskorendaflokki og farmiði í unglingaflokki.
Ákveðið að senda rétthöfum bréf um þátttöku.

4. EM öldunga - sveitakeppni.
Sveitakeppni öldunga verður haldin í febrúar í Dresden í Þýskalandi. Áhugi er fyrir því að senda sveit til þátttöku. S.Í. kemur að fjársöfnun.

5. Íslandsmót skákfélaga - seinni hluti.
Rætt um mótsstað. Ákveðið að mótið fari fram í MH nema annar álitlegur kostur bjóðist.

6. NM einstaklinga.
Mótið fer fram 19. - 22. febrúar í Svíþjóð. Keppendur skv. stigum verða:
A. Halldór B Halldórsson og Björn Ívar Karlsson
B. Hilmar Þorsteinsson og Ágúst B. Björnsson
C. Atli Freyr Kristjánsson og Alex C. Orrason
D. Helgi Brynjarsson og Sverrir Þorgeirsson
E. Hjörvar Steinn Grétarsson og Svanberg Már Pálsson

Fararstjórar verða Haraldur og Páll.

7. Styrkbeiðnir.
Sævar Bjarnason sækir um styrk á Aeroflot Open
Guðmundur Kjartansson sækir um styrk kr. 35. þús. á Aeroflot Open
Dagur Arngrímsson sækur um styrk kr. 30 þús. á Aeroflot Open.
Samþykktir styrkir kr. 30. þús. á mann.

8. Önnur mál.
Reykjavíkurskákmót og Atskákmót.
Búið er að skrifa undir samning við Atlantsál. Framkvæmd mótsins er í höndum mótsstjórnar.

Íslenska sendiráðið í Bretlandi verður með kynningu á bók um einvígið ´72. Sendiráðið óskar eftir fulltrúa frá S.Í. Ákveðið að bjóða Guðmundi G. Þórarinssyni að fara ef kostnaður fæst greiddur.

Kvennalandsliðið
Rætt um landsliðsþjálfara kvenna. Málinu frestað.

Páll ræddi um kostnað v. stigareikning til FIDE. Rætt um að kynna félögunum þennan kostnað.

Fundargerð lesin upp og samþ.
Fundi slitið kl. 20.40.
Ríkharður Sveinsson



 
Skáksamband Íslands :: Faxafen 12 :: 108 - Reykjavík :: s. 568-9141 :: fax: 568-9116 :: netfang: siks@simnet.is :: veffang: www.chess.is