Skáksamband Íslands    
14. fundur stjórnar S.Í. Fimmtudaginn 11. des. 2003 kl. 18.00.

Mætt: Stefán, Lilja, Helgi, Daði, Þorfinnur, Bragi, Ásdís, Ríkharður, Páll.

1. Bréf og tilkynningar. Ályktun aðalfundar félags stórmeistara, dags. 15. nóv. sl. lögð fram.

2. Skákþing Íslands 2004. Rætt um fyrirkomulag á Skákþingi Íslands 2004. Bragi kemur með tillögur á 1. fund á nýju ári.

3. Reykjavíkurskákmótið. Forseti ræddi um stöðu á Reykjavíkurskákmótinu og atskákmótinu, sem fyrirhugað er eftir Reykjavíkurmótið og fund við RUV og Atlantsál. Samningaviðræður standa yfir og allar líkur á að af atskákmótinu verði. Samþykkt að mótsnefnd Reykjavíkurmótsins fari einnig með framkvæmd atskákmótsins ef af því verður.

4. Úrskurður Dómstóls S.Í. Dómstóll S.Í. hefur fellt úrskurð um að mótsstjórn Í.S. skuli koma saman og fella úrskurð að nýju með Einar S. Einarsson innanborðs.

5. Stefnumótun. Forseti kynnti helstu málaflokka sem hann leggur til að fái meiri umræðu:
- Rætt um fjáröflun. Lilja leiðir málaflokkinn.
- Rætt um kynningarmál. Daði Örn leiðir málaflokkinn.

Innskot: Tilnefningar til skákmanns ársins: Arnar E. Gunnarsson, Bragi Þorfinnsson, Hannes H Stefánsson, Ingvar Ásmundsson og Ingvar Þór Jóhannesson.
Tilnefningar til efnilegasta skákmanns ársins: Björn Ívar Karlsson, Dagur Arngrímsson, Guðmundur Kjartansson, Hallgerður Þorsteinsdóttir, Hjörvar Steinn Grétarsson og Svanberg Már Pálsson. Tillögurnar samþykktar.

- Rætt um mótahald og ýmis mál. Forseti leiðir málaflokkinn.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið 20.53.
Ríkharður Sveinsson



 
Skáksamband Íslands :: Faxafen 12 :: 108 - Reykjavík :: s. 568-9141 :: fax: 568-9116 :: netfang: siks@simnet.is :: veffang: www.chess.is