Skáksamband Íslands    

3. fundur stjórnar S.Í. fimmtud. 12.6.03. kl. 18.00

Mætt: Ásdís, Stefán, Bragi, Þorfinnur, Páll, Ríkharður.

Bréf og tilkynningar.
Tilkynning um Norðurlandamót öldunga 11.- 19. 10. Íslandsmótið hefur ekki enn verið haldið en sigurvegari í því móti hefur á rétt á þátttöku. S.Í. hefur greitt ferðakostnað á Norðurlandamótið hin síðari ár. Beðið með að ákveða með þátttöku þar til Íslandsmótið hefur farið fram. Þátttaka í Íslandsmóti öldunga hefur verið slök hin síðari ár en skorað er á TG að reyna enn eina ferðina að lyfta mótinu upp.

Bréf frá Akureyrarbæ þar sem styrk til S.Í. v. Norðurlandamóts er hafnað.

FIDE Grand Prix.
Ekki hefur enn borist formleg staðfesting frá FIDE við kröfum Íslendinga. Kostnaðaráætlun mótsins hljóðar uppá 3 millj. tap og vegur þar þyngst lækkun á tekjum v. gengissigs dollara. Ekki er unnt að taka ákvörðun um hvort af mótinu verður fyrr en búið er að fá staðfestingu frá FIDE og styrktaraðilum. Forseti vinnur áfram í málinu með framkvæmdastjóra. Mjög brýnt er að nefndin komi saman hið allra fyrsta. Umboð nefndarinnar endurnýjað og ákveðið að Stefán taki sæti í nefndinni og er hún þá skipuð auk Stefáns, Helgi Ól., Hrannar og Áskell Örn.

Íslandsmót Landsliðsflokkur – kvennaflokkur.
Rætt um framkvæmd kvennaflokksins. Rætt um staðsetningu, en verið er að kanna sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Engin ákvörðun tekin en forseti og framkvæmdastjóri vinna áfram í að finna mótsstað.

Evrópumót landsliða.
Bragi ræddi hugmyndir um val á keppendum. Bragi leggur til að 4 efstu skákmenn í landsliðsflokki myndu vinna sér sæti í landsliðið. 2 skákmenn yrðu síðan valdir af stjórn S.Í. Svipuð framkvæmd myndi gilda um kvennalandsliðið. Málinu frestað til næsta fundar.

Minningarmót um Guðmund Arnlaugsson.
Stefnt að því að halda mótið í byrjun júlí. Helgi Ól. sér um val keppenda en að öðru leyti er málinu frestað þar til síðar.

Fyrir fundinum liggja 4 styrkbeiðnir. Ein umsókn fellur ekki að reglum um styrkveitingar og er henni því vísað frá.
Dagur Arngrímsson sækir um 30.000.-

Stefán Kristjánsson sækir um 50.000.-

Bragi Þorfinnsson sækir um 60.000.- á tvö mót.

Svanberg Már Pálsson sækir um 30.000.-

Samþykkt að styrkja Braga um 50.000.- og Dag og Stefán um 30.000.- hvorn og Svanberg um 25.000.-

Önnur mál.
Forseti ræddi um agamál í ferðum á skákmót á erlenda grundu. Málinu frestað til næsta fundar, en endurskoða mætti reglugerðina um keppnisferðir á vegum S.Í.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið kl. 19.45.

Ríkharður Sveinsson


 
Skáksamband Íslands :: Faxafen 12 :: 108 - Reykjavík :: s. 568-9141 :: fax: 568-9116 :: netfang: siks@simnet.is :: veffang: www.chess.is