| 13. fundur stjórnar S.Í.
fimmtud. 13.11.03 kl. 18.00.
Mætt: Ásdís, Stefán, Helgi,
Bragi, Daði Örn, Ríkharður, Lilja,
Haraldur Baldursson.
1. Greinargerð til dómstólsins.
Greinargerðin, sem samþykkt var á
síðasta fundi var ekki lögð fyrir
fundinn er forseti óskaði eftir fresti
við dómstólinn. Samþykkt að
Kristján Stefánsson mæti fyrir
hönd stjórnarinnar og kynnir afstöðu
S.Í.
2. Bréf og tilkynningar.
Lagt fram bréf Þorsteins Þorsteinssonar
þar sem hann gerir grein fyrir atkvæði
sínu í úrskurði mótsstjórnar
Í.S.
Lagt fram bréf þar sem óskað
er eftir tilboðum í að halda Norðurlandamót
2005.
Auglýsing um Evrópukeppni öldungasveita.
Málið kynnt fyrir þeim sem gætu
myndað sveit.
Auglýsing um Ólympíumótið,
sem haldið verður í október
2004 á Mallorka.
3. Reykjavíkurskákmótið
2004.
Helgi kynnti stöðuna á Reykjavíkurskákmótinu,
sérstaklega dagsetningar og tengsl mótsins
við alþjóðlegt atskákmót
sem haldið yrði að loknu Reykjavíkurskákmóti.
Stefnt er að því að halda Reykjavíkurskákmótið
7.- 16. mars og alþjóðlegt atskákmót
17. - 21. mars. Samþykkt mótsnefnd: Stefán
Baldursson, Bragi Kristjánsson, Helgi Ólafsson,
Daði Örn Jónsson, Lilja, Guðmundur
G. Þórarinsson, Einar S. Einarsson. Frá
T.R. kemur Torfi Leósson, en ekki ljóst
hvort önnur félög tilnefni menn í
nefndina. Nefndarmenn eru tilnefndir með fyrirvara
um samþykki þeirra sem ekki voru á
fundinum.
4. HM barna og unglinga.
Rætt um fararstjóramál á
HM barna og unglinga, kostnaðarhliðina og
fl. Málinu frestað.
5. Íslandsmótið í atskák.
Undanrásir verða haldnar föstudag
28. nóv. og 30. nóv. Verðlaun verða
óbreytt. Rætt um að breyta fyrirkomulaginu.
Ríkharður sér um skákstjórn.
6. Jólafundur. Rætt um að halda stefnumótunarfund
fyrir jólafundinn. Stefnt að 13. desember.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið kl. 19.56.
Ríkharður Sveinsson
|