6. fundur stjórnar S.Í.
14.08.03 kl. 18.00
Mætt: Ásdís, Stefán, Páll,
Bragi, Ríkharður, Ingvar, Þorfinnur,
Daði Örn, Haraldur Baldursson.
1. Bréf og tilkynningar.
Bréf v. móts í Rússlandi.
2. Landsliðsflokkur.
Snorri Bergsson hefur tilkynnt að hann geti ekki
tekið þátt í landsliðsflokki
Ákveðið að bjóða Sævari
Bjarnasyni þátttöku. 1. varamaður
verður Áskell Örn Kárason og
Guðmundur Halldórsson 2. varamaður.
Teflt verður í Hafnarborg við Strandgötu
24.8. - 3.9.
3. Mótaáætlun
Mótanefnd kom saman og liggur tillaga frá
henni fyrir. Áætlunin lögð fram
til kynningar og verður sett á netið.
Ýmsar athugasemdir gerðar. Lagt til að
mótaáætlun verði búin
til í apríl/maí eða strax
að loknum aðalfundi framvegis.
4. Evrópumót öldunga.
Ingvar Ásmundsson hefur áhuga á
að taka þátt í Evrópumóti
öldunga. Kostnaður óverulegur. Ákveðið
að bjóða Ingvari að taka þátt.
5, Íslandsmót skákfélaga.
Áskorun frá TG um að færa
aftur dagsetningu á Íslandsmóti
skákfélaga. Rök félagsins
eru aðallega þau að mótið
rekst á HM barna. Töluverðar umræður
urðu um dagsetningar á Íslandsmótinu.
Tillagan um frestum felld 2-3.
6. Stigalágmörk.
Æskulýðsnefnd hefur lagt fram tillögu
um ný stigalágmörk.
1. Fulltrúar Íslands verða að
uppfylla eftirfarandi stigalágmörk:
Drengir Stúlkur
Lágmarksstig Lágmarksstig
10 ára og yngri 1200 1100
11 - 12 ára 1400 1200
13 - 14 ára 1600 1300
15 - 16 ára 1800 1400
17 - 18 ára 2000 1500
19 - 20 ára 2100 1600
Lágmörkin lækka um 200 stig hjá
drengjum og 100 stig hjá stúlkum. Rætt
um að hafa ákvæði um virkni í
skákmótum. Stigalágmörkin
samþykkt. Rætt um undanþáguákvæði
varðandi þá sem uppfylla ekki skilyrðin.
Stjórn S.Í. er heimilt að veita
undanþágu frá stigalágmörkum
ef sérstaklega stendur á.
7. HM barna og unglinga.
Rætt um keppendafjöld á HM barna.
Rætt um hugsanlega keppendur og fjárhagshliðina.
Gert er ráð fyrir 4 keppendum skv. fjárhagsáætlun
en áhugi er fyrir því að senda
fleiri ef tekst að safna upp í kostnað.
Ákveðið að senda 5 keppendur í
5 flokka og fleiri ef tekst að safna fé.
8. FIDE Grand Prix.
Lögð fram fjárhagsáætlun.
Samþykkt að fela undirbúningshópi
að hefja undirbúning að mótinu
á grundvelli fjárhagsáætlunar
með það fyrir augum að mótið
verði haldið í Reykjavík í
byrjun febrúar 2004. Stefnt er að því
að mótið verði ekki haldið
með fjárhagslegum halla.
9. Tölvumál.
Forseta og framkvæmdastjóra falið
að leita samninga við Gunnar Björnsson
um eftirlit með skak.is. Samþykkt að
S.Í. fjárfesti í ferðavél
sem leigð verði út til skákmanna.
Rætt um gagnagrunn skákmanna f. næsta
ÍS.
Samþykkt að senda nýkjörnum
heiðursfélögum TR árnaðaróskir.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið kl. 21.05
Ríkharður Sveinsson
|