Skáksamband Íslands    

2. fundur stjórnar S.Í. fimmtud. 22.5.´03 kl. 18.00.

Mætt: Stefán, Ásdís, Helgi, Þorfinnur, Páll, Ríkharður, Haraldur Baldursson.

1. Bréf og tilkynningar.

Heimsmeistaramót barna og unglinga í Grikklandi 23. okt. - 2. nóv. Erindinu var vísað til æskulýðsnefndar.

Norðurlandamót kvenna - einstaklingskeppni verður haldið í Stokkhólmi 2.- 10. ágúst. Ákveðið að bjóða tveimur af sterkustu skákkonum landsins að taka þátt.

2. Landsmót í skólaskák.

Mótið fór fram í Vestmannaeyjum 15.- 18. maí. Dagur Arngrímsson sigraði Guðmund Kjartansson í aukakeppni um efsta sætið í eldri flokki. Þeir fengu 10 1/2 vinning af 11. Hjörtur Jóhannsson fékk 8 1/2 í 3. sæti.

Svanberg Már Pálsson sigraði í yngri flokki með 10 vinn. af 11. Hjörvar Steinn Grétarsson og Helgi Brynjarsson urðu í 2. - 3. sæti með 8 1/2 vinn.

SÍ hélt landsmótið í samvinnu við Skákskólann og heimamenn og komu ekki nein ágreiningsmál upp og framkvæmdin tókst vel. Heimamönnum færðar þakkir.

3. Heimsbikarmót.

Helgi og Hrannar fóru á fund hjá Atlantsáli. Dagsetning mótsins, ef af verður, 17. - 24. sept. Mótið getur teflst í Reykjavík eða á Akureyri og er fyrirkomulagið hugsað þannig að 32 keppendur (6 íslenskir) tefla m. útsláttarfyrirkomulagi. Þeir sem falla út í fyrstu umferð taka þátt í öðru móti sem fer fram samhliða Heimsbikarmótinu. Mögulegt er að skipta mótunum á milli sveitarfélaga. Ákveðið að taka saman upplýsingar um fjárhagsáætlun fyrir næsta fund en þá verður tekin ákvörðun um hvort af mótinu verður. Helgi og Hrannar vinna áfram í málinu með forseta og framkvæmdastjóra.

4. Vefmál.

Nefndin sem skipuð var á síðasta fundi telur að hægt sé að setja upp nýjan vef með litlum eða engum tilkostnaði og því er ekki nauðsynlegt að kaupa sér kerfi. Nefndin vinnur áfram í málinu.

5. Alþjóðlegt mót í Frakklandi.

TG fékk boð á mót í Saint Lo í Frakklandi sem síðan var vísað til S.Í. Samþykkt að vísa erindinu til TG sem hefur fullan ákvörðunarrétt um þátttökuna.

6. Önnur mál.

Forseti ræddi um nýjar hugmyndir sem gætu vakið athygli á skákinni sem getur hugsanlega auðveldað sambandinu fjáröflun. Ýmsar hugmyndir reifaðar.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið 19.27

Ríkharður Sveinsson


 
Skáksamband Íslands :: Faxafen 12 :: 108 - Reykjavík :: s. 568-9141 :: fax: 568-9116 :: netfang: siks@simnet.is :: veffang: www.chess.is