Skáksamband Íslands    
10. fundur stjórnar S.Í. 23. okt. 2003 kl. 18.10.

Mætt: Ásdís, Stefán, Bragi, Ríkharður, Daði Örn, Haraldur Baldursson.

1. Bréf og tilkynningar. Bréf dags. 25.9. frá Hróknum þar sem skorað er á stjórn S.Í. að endurskoða afstöðu sína varðandi brotthvarf sveita Hróksins úr Í.S. Framkvæmdastjóri hefur nú þegar svarað erindinu.

2. Íslandsmót skákfélaga. Undirbúningur er á lokastigi. Rætt um ýmsa þætti varðandi framkvæmdina. Nauðsynlegt er að skipa varamann í mótsnefndina. Samþykkt að tilnefna Braga Kristjánsson varamann.

3. Grand Prix 2004. Hugmynd er að halda mótið án samstarfs við FIDE. Mótið yrði haldið á eftir Reykjavíkurskákmótinu og væri hluti af skákhátíð sem haldin yrði um þetta leyti. Atlantsál hafa gefið vilyrði fyrir fjárstuðningi en ýmsir lausir endar eru í málinu. Forseti vinnur áfram í málinu ásamt Helga Ól. en engin frekari ákvörðun tekin.

4. Reykjavíkurskákmótið. Skipa þarf mótsnefnd. Ákveðið að bjóða Reykjavíkurfélögunum að tilnefna fulltrúa í nefndina. Frestað til næsta fundar.

5. Heimasíða S.Í. Heimasíðan er í ólagi og ekki komin ný. Ríkharður gengur í málið.

6. Styrkbeiðnir. Styrkbeiðnir frá Róberti Harðarsyni og Ingvari Ásmundssyni. Róbert á mót í Dóminíska lýðveldinu og Ingvar á Heimsmeistaramót öldunga í Þýskalandi. Róbert uppfyllir ekki skilyrði þess að fá styrk og er umsókn hans því hafnað. Samþ. að styrkja Ingvar um kr. 30.000.-

7. Önnur mál.
Haraldur ræddi um töfludráttin á Í.S.
Ísland lenti í 26. sæti af 33 á EM landsliða með 8 stig en 15 vinninga. Bestum árangri náðu Þröstur Þórhallsson og Stefán Kristjánsson 3 1/2 vinn af 7. Bragi Þorfinnsson fékk 2 1/2 af 7, Jón Viktor Gunnarsson 2 af 7 en Björn Þorfinnsson 1 1/2 af 4.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið kl. 19.40.
Ríkharður Sveinsson


 

 




 
Skáksamband Íslands :: Faxafen 12 :: 108 - Reykjavík :: s. 568-9141 :: fax: 568-9116 :: netfang: siks@simnet.is :: veffang: www.chess.is