Skáksamband Íslands    

9. fundur stjórnar S.Í. 24. sept. kl. 18.10

Mætt: Ásdís, Bragi, Stefán, Ríkharður, Daði Örn, Páll, Þorfinnur, Haraldur Baldursson.

1. Reglugerð Í.S.

Lögð fram tillaga að reglugerð um Íslandsmót skákfélaga unnin af Braga Kristjánssyni og Daða Erni Jónssyni. Afgreiðslu frestað þar til síðar á fundinum.

2. Íslandsmót skákfélaga.

Ósk frá Hróknum um að seinni hluti Í.S. verði færður fram um eina viku eða til 27. - 28. febrúar í stað 5. - 6. mars. Dagsetningin rædd í tengslum við Reykjavíkurskákmótið. Samþykkt að fresta afgreiðslu málsins og óska eftir frekari upplýsingum um mót Hróksins. Forseti ræðir við Hrókinn og kannar áhuga Reykjavíkurfélaganna um aðkomu að Reykjavíkurskákmótinu.

Ákveðið að skipa eftirtalda í nefnd til að endurskoða reglur um Í.S.:

Áskell Örn Kárason, Jón Rögnvaldsson, Haraldur Baldursson formaður nefndarinnar, Torfi Leósson, Halldór Grétar Einarsson, Helgi Áss Grétarsson, Hrafn Jökulsson. Varamaður er Stefán Baldursson gefi einhver ofangreindra ekki kost á sér.

3. Vinnufundur.

Ekkert varð af fyrirhuguðum vinnufundi í Húsafelli. Vinna þarf að undirbúningi en fundarmenn voru sammála um að slíkur fundur væri æskilegur. Rætt um að skipa þurfi einstaklinga sem hafi forgöngu að ákveðnum málaflokkum. Stefnt að nýrri dagsetningu 7.- 8. nóvember og ákveðið að skipta málefnum á stjórnarmenn.

4. Heimsmeistaramót ungmenna.

Rætt um fararstjóramál, kostnaðarmál og fjármál. Samþykkt að Helgi Ólafsson og Páll Sigurðsson fari sem fararstjórar.

5. Reglugerð Í.S. - framhald.

Töluverðar umræður urðu um afgreiðslu á reglugerðinni og voru skiptar skoðanir á reglugerðinni. Forseti bar skilaboð Haraldar Blöndal sem óskaði eftir að afgreiðslunni yrði frestað, en sú tillaga var felld. Fundurinn samþykkti að taka reglugerðina til afgreiðslu og atkvæðagreiðslu. Reglugerðin borin upp með breytingum við 2., 3., 6. og 8. grein. Samþykkt samhljóða.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið kl. 20.35.

Ríkharður Sveinsson



 

 




 
Skáksamband Íslands :: Faxafen 12 :: 108 - Reykjavík :: s. 568-9141 :: fax: 568-9116 :: netfang: siks@simnet.is :: veffang: www.chess.is