Skáksamband Íslands    

4. fundur stjórnar S.Í., 26. júní '03 kl. 18.07.

Mætt: Ásdís, Lilja, Stefán, Bragi, Þorfinnur, Ríkharður, Haraldur Blöndal, Páll, Haraldur Baldursson, Daði Örn.

1. Bréf og tilkynningar.

Arnar Gunnarsson og Davíð Kjartansson hafa verið útnefndir FIDE meistarar.

2. FIDE Grand Prix.

Forseti kynnti stöðu á Grand Prix mótinu. Nefndin hefur komið saman og bréfaskriftir hafa staðið yfir við FIDE. Ljóst þykir að ekki verði af mótinu í haust og líklegri tímasetning væri febrúar 2004. FIDE hefur ekki enn svarað kröfum Íslendinga og þá er enn eftir að taka endanlega ákvörðun um mótshaldið.

3. Styrkbeiðnir.

Arnar Gunnarsson, Jón Viktor Gunnarsson, Davíð Kjartansson, Magnús Örn Úlfarsson og Guðmundur Kjartansson sækja um styrki að fjárhæð 30-60 þús.

Nokkur umræða fór fram um hvernig ætti að forgangsraða styrkjum og einnig um fresti til að sækja um.

Samþykkt að veita neðangreindum aðilum styrk sem hér segir:

Arnar, 60 þús. á 3 mót, Jón Viktor 50 þús. á 2 mót, Magnús Örn, Davíð og Guðmundur 30 þús. á 1 mót hver.

4. Skákþing Íslands - Landsliðsflokkur karla og kvenna.

Góðar líkur eru á að mótið fari fram í Hafnarfirði. Reiknað er með því að mótið hefjist 24. ágúst og endi 4. sept. Verðlaun í karlaflokki verða óbreytt. Nokkur umræða fór fram um keppnisfyrirkomulagið og hve mörg sæti eigi að veita til setu í landsliði.

Samþykkt að keppendur verði 12 og tefli einfalda umferð. 2 efstu í landsliðsflokki vinna sér inn rétt í landsliði Íslands á EM 2003.

Ákveðið að kvennaflokkurinn fari fram samhliða landsliðsflokki. Teflt verður í meistaraflokki og opnum flokki ef aðstæður leyfa.

5. Norðurlandamót kvenna.

Guðfríður Lilja verður eini fulltrúi Íslands á NM því aðrar skákkonur eiga ekki

heimangengt.

6. Fundur í Norræna skáksambandinu.

Boðað er til Norðurlandamóts 6. september en 2 keppendur frá Íslandi eiga rétt til þátttöku. Ákveðið að kanna áhuga skákmanna að fara á Norðurlandamótið.

Jafnframt er boðað til fundar í Norræna skáksambandinu. Ákveðið að skoða hvort eigi að senda fulltrúa á fundinn. Ákveðið að tilnefna Peter Heine Nielsen sem skákmann Norðurlanda.

7. Íslandsmót skákfélaga.

Rætt um keppnisstað. Komið hefur til tals að tefla í B&L eða MH. Minni kostnaður fylgir því að tefla í MH. Rætt um að fá kostnað greiddan verði fyrirtæki á almennum markaði fyrir valinu.

8. Helgarmót Landsvirkjunar.

Áhugi er fyrir hendi að tefla í haust fyrir austan. Tekið mjög jákvætt í málið.

9. Önnur mál.

Forseti ræddi lauslega um stefnumörkun sambandsins og nefndi hugmynd um að stjórnin héldi umræðudag. Hugmynd um 19.- 20. september og kanna stjórnarmenn þá dagsetningu.

Rætt um þátttöku barna á evrópu og heimsmeistaramótum, stigalágmörk o.fl.

Umræða um agamál frá síðasta fundi frestað til stefnumótunarinnar.

Fleira ekki rætt

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið kl. 19.55

Ríkharður Sveinsson




 
Skáksamband Íslands :: Faxafen 12 :: 108 - Reykjavík :: s. 568-9141 :: fax: 568-9116 :: netfang: siks@simnet.is :: veffang: www.chess.is