Skáksamband Íslands    

5. fundur stjórnar S.Í., mánudag 28.7.03 kl. 18.00

Mætt: Ásdís, Stefán, Ríkharður, Bragi, Haraldur Blöndal, Helgi, Lilja, Haraldur Baldursson.

1. Fundargerð síðasta fundar. Í síðustu fundargerð láðist að geta um ályktun um 4. lið um Landsliðsflokk 2004. Eftirfarandi setningu er bætt við 4. lið.:

Stefnt að því að landsliðsflokkur 2004 fari fram um páska og verði þá keppt eftir útsláttarfyrirkomulagi.

2. Bréf og tilkynningar. Bréf v. Landsmóts UMFÍ 2004.

3. Rætt um dagsetningu á Íslandsmóti skákfélaga, en Evrópumót taflfélaga rekst á við Íslandsmótið. Ákveðið að keppnin hefjist 24.- 26. október. Kannað áfram með hentugt húsnæði.

4. Norðurlandamót einstaklinga. Kannað var með áhuga hjá sterkustu skákmönnum landsins. Ákveðið að Hannes Hlífar og Helgi Ólafsson taki þátt í Norðurlandamótinu fyrir Íslands hönd.

5. Skákþing Íslands, landsliðs- og kvennaflokkur. Nánast frágengið að mótin verði haldin í Hafnarfirði. Endanleg ákvörðun liggur fyrir á allra næstu dögum. Keppt verður í landsliðsflokki og meistaraflokki kvenna. 7 af 11 sem áttu rétt hafa svarað jákvætt. Búið að auglýsa umsóknarfrest til 5. ágúst fyrir áhugasama þátttakendur. Ákveðið að Ríkharður taki að sér skákstjórn.

6. Styrkbeiðni. Jón Garðar Viðarsson sækir um styrk að fjárhæð kr. 30.000 á skákmót í Hollandi. Samþykkt.

7. Önnur mál.

Arnar Gunnarsson náði 3ja og síðasta áfanga að alþjóðlegum titli og Bragi Þorfinnsson náði 2400 stigum og verður því útnefndur alþjóðlegur meistari á næsta FIDE þingi.

Helgi Ólafsson ræddi um Reykjavíkurskákmótið 2004 og minnti á að mótið á 40 ára afmæli. Ákveðið að skrifa TR bréf og kanna áhuga þeira á að taka þátt í móthaldinu. Rætt lauslega um mótshaldið, tímasetningu o.fl.

Stefnumótunarfundur stjórnar S.Í. Stefnt að 19.- 21. sept. í Húsafelli.

Evrópumót landsliða. Tilkynna þarf þátttöku f. 10. ágúst. Ákveðið að skrá kvenna og karlalið.

NM framhaldsskólasveita verður haldið í Reykjavík 29. - 31. ágúst. Teflt verður í Faxafeninu.

Forseti, Helgi Ól. og Sigurður Pétursson í Ísspor eru að vinna að uppstillingu á skákherbergi í Þjóðmenningarhúsinu. Stefnt að opnun innan tíðar þar sem fólk getur skoðað einvígisborðið og muni tengda einvíginu ´72. Ofangreindir aðilar vinna áfram í málinu.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið 19.25.

Ríkharður Sveinsson

 

 


 

 




 
Skáksamband Íslands :: Faxafen 12 :: 108 - Reykjavík :: s. 568-9141 :: fax: 568-9116 :: netfang: siks@simnet.is :: veffang: www.chess.is