Skáksamband Íslands    

1. fundur stjórnar S.Í. miðvikudag 30.4.03. kl. 18.05

Mætt: Stefán, Ásdís, Helgi, Bragi, Þorfinnur, Haraldur Baldursson, Páll, Ríkharður

1. Bréf og tilkynningar. Rætt um vefmál en fyrir liggur tilboð í vefumsýslukerfi. Ríkharður, Páll og Daði Örn skipaðir í nefnd til að þarfagreina vefmál sambandsins.

2. Verkaskipting stjórnar. Skipað var í embætti og nefndir í stjórn S.Í. svohljóðandi:

Varaforseti: Guðfríður Lilja Grétarsdóttir

Gjaldkeri: Bragi Kristjánsson

Ritari: Ríkharður Sveinsson

Skákritari: Haraldur Blöndal

Meðstjórnendur: Haraldur Baldursson

Helgi Ólafsson

Skákmótanefnd: Ríkharður Sveinsson formaður, Gunnar Björnsson, Sigurbjörn Björnsson, Haraldur Baldursson og Páll Sigurðsson.

Kvennaskáknefnd: Helgi Ólafsson formaður, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Harpa Ingólfsdóttir.

Æskulýðsnefnd: Haraldur Baldursson formaður, Helgi Ólafsson, Arngrímur Gunnhallsson, Torfi Leósson, Páll Sigurðsson, Vigfús Ö. Vigfússon.

Landsmótsstjóri: Haraldur Baldursson

Mótsstjórn Íslands-

móts skákfélaga: Þorsteinn Þorsteinsson, Jón Rögnvaldsson, Þráinn Guðmundsson. Varam. Einar S. Einarsson.

Framkvæmdanefnd

Íslandsmóts skák-

félaga: Ólafur Ásgrímsson formaður, Ásdís Bragadóttir, Birgir Sigurðsson, Bragi Kristjánsson, Haraldur Blöndal, Páll Sigurðsson, Andri Hrólfsson, Kristján Örn Elíasson.

Fastafulltrúi hjá

FIDE: Einar S. Einarsson

FIDE fulltrúi

kvenna: Guðfríður Lilja Grétarsdóttir

FIDE fulltrúi

unglinga: Haraldur Baldursson

Fulltrúi í stjórn

Skáksambands

Norðurlanda: Einar S. Einarsson

Til vara: Stefán Baldursson

Skákstiganefnd: Ríkharður Sveinsson formaður, Gunnar Björnsson, Björn Jónsson, Halldór Grétar Einarsson.

Skákminjanefnd: Þráinn Guðmundsson formaður, Birgir Sigurðsson, Bragi Halldórsson.

Atskáknefnd: Helgi Ólafsson formaður, Áskell Örn Kárason, Hermann Gunnarsson.

Ritstjórn Tímaritsins

Skákar: Þráinn Guðmundsson, Áskell Örn Kárason, Bragi Kristjánsson, Arnar E. Gunnarsson, Páll A. Þórarinsson, Snorri Bergsson.

3. Styrkbeiðnir. Tekin fyrir að nýju styrkbeiðni frá Stefáni Kristjánssyni en hann

sækir um ótilgreinda fjárhæð á Evrópumót einstaklinga í Istanbul. Ingvar Ásmundsson sækir einnig um styrk á sama mót. Samþykkt að styrkja Stefán um kr. 50.000.- og Ingvar um kr. 30.000.-

4. Önnur mál.

- Rætt um komu Lanka en hann kemur til landsins 17. júní og fer af landi brott 29. júní. Setja þyrfti reglur um námskeiðin, þ.e. hverjir eigi rétt á að sækja námskeiðin, reglur um mætingu o.fl. Málið rætt áfram á milli funda.

- Helgi ræddi um þá skákmuni sem eru í vörslu Þjóðmenningarhússins. Munirnir geta verið þar áfram en kanna mætti aðra möguleika.

- Forsetinn ræddi um fjármögnunarmál sambandsins og hlúa þyrfti að styrktaraðilum. Forseti lagði til að skipaður yrði hópur sem kæmi fram með tillögur um framkvæmd fjáröflunar fyrir sambandið. Engin ákvörðun tekin og málinu frestað.

Fundi slitið kl. 20.00.

Ríkharður Sveinsson

 
Skáksamband Íslands :: Faxafen 12 :: 108 - Reykjavík :: s. 568-9141 :: fax: 568-9116 :: netfang: siks@simnet.is :: veffang: www.chess.is