Skáksamband Íslands    

Aðalfundur Skáksambands Íslands tímabilið 2002-2003

26. apríl 2003.

1. Forseti setti fund og gerði tillögu um Ágúst Sindra Karlsson sem fundarstjóra og sjálfan sig til vara. Sem tillögu að ritara gerði hann Torfa Leósson og Ríkharð Sveinsson til vara. Samþykkt samhljóða.

2. Ágúst Sindri þakkaði traustið og tók þegar til starfa sem fundarstjóri. Fundarstjóri kynnti til leiks formann kjörbréfanefndar, Ólaf H. Ólafsson, sem tók til starfa. Ólafur gerði að umtalsefni þann leiðinlega sið að margir eru skráðir í fleiri en eitt félag.

Ólafur fór svo yfir kjörbréf og kannaði fundarsókn. Fulltrúar á fundi S.Í.:

TR 224 félagar 10 fulltrúar

Hellir 205 " 8 "

Hrókurinn 224 " 9 "

T. Kópavogs 42 " 2 "

KR 69 " 3 " (aðeins veitt 1 umboð

enn sem komið er).

SFEB 34 " 1 "

TG 120 " 5 "

SA 97 " 4 "

T. Vestm.eyja 50 " 1 "

S.Austurlands 21 " 1 "

S. Hauka 42 " 2 "

S. Selfoss 16 " 1 "

S. Grindavíkur 1 "

Samtals 13 félög - 48 fulltrúar

3. Ólafur H. Ólafsson flutti tvær tillögur um dagskrárbreytingu.

1) Liður 7. Inntaka nýrra félaga verði tekinn fyrir á undan lið 4. Skýrslu stjórnar. Samþykkt samhljóða.

2) Liður 8 verði færður aftur fyrir lið 13. Samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta.

4. Forseti lagði til að Skákfélag Grindavíkur verði tekið inní Skáksambandið. Samþykkt samhljóða.

5. Fundarstjóri bar upp kjörbréf. Samþykkt samhljóða. Jóhann H. Ragnarsson tók til máls og sagði að það þyrfti skýrari reglur um það að félög mættu eiga dótturfélög, eins og samband TG og SG er.

6. Forseti flutti skýrslu stjórnar. Hann vísaði í ársskýrslu S.Í. sem lá frammi, en hann gerði að umtalsefni tvo liði:

1) Hátíðarhöldin vegna "Einvígis aldarinnar", sem heppnuðust vel og var góð kynning. Forseti þakkaði Helga Ólafssyni, Sigurði Péturssyni, Guðmundi G. Þórarinssyni og Einari S. Einarssyni.

2) Uppbygging á landsliðum karla og kvenna. Forseti benti á að þetta mál hefði mikið verið rætt á síðasta aðalfundi. Forseti sagði frá því að stjórn S.Í. hefði sett saman landsliðshópa karla og kvenna sem Bragi Kristjánsson (karlaflokki) og Helgi Ólafsson (kvennaflokki) hafa umsjón með. Forseti minntist á komu tveggja erlendra landsliðsþjálfara til landsins: Zigurds Lanka og Emil Sutovsky. Forseti þakkaði síðan Taflfélagi Garðabæjar sérstaklega fyrir að hafa búið til verkefni fyrir kvennalandsliðið og B-landslið karla. Forseti sagði síðan að frammistaða á síðasta Ólympíumóti hefði verið framar öllum vonum í karla-og kvennaflokki.

Að lokum gat forseti þeirrar grósku sem væri í íslensku skáklífi - þar væru m.a. skemmtileg mót Hróksins og mót Hellis og TG sem hefðu vakið athygli út fyrir landsteinana. Auk þess fór forseti fögrum orðum um Íslandsmót skákfélaga sem væri alltaf að verða skemmtilegra og stærra að hans mati. Forseti taldi síðasta starfsár hafa verið með því besta.

Forseti gat þess einnig að S.Í. væri að reyna að fá Grand Prix mót FIDE til landsins. Forseti þakkaði að lokum öllum samstarfsmönnum sínum fyrir samstarfið á liðnum árum, en hann er sem kunnugt er að hætta sem forseti.

7. Gjaldkeri gerði grein fyrir reikningum síðasta árs. Gjaldkeri vakti athylgi á því að tekjur hefðu verið af Tímaritinu Skák, en menn hefðu haft áhyggjur af ritinu á síðasta aðalfundi. Gjaldkeri sagði að þróun fjármála væru á réttri leið í S.Í. Hann gat þess þó að söfnun vegna Ólympíumóts hefði ekki gengið vel.

8. Undir liðnum "umræður um stjörf stjórnar" tók Torfi Leósson, formaður TR, til máls og gerði athugasemd vð málflutning forseta - Hann taldi að forseti hefði átt að geta einnig skákmóta sem fram færu í TR svo sem Skákþing Reykjavíkur, Haustmót TR og U-2000 mótin.

9. Ólafur H. Ólafsson stakk upp á Stefáni Baldurssyni sem forseta S.Í. Stefán var samþykktur með lófaklappi.

10. Stefán gerði tillögu um aðalstjórn:

Harald Baldursson

Braga Kristjánsson

Guðfríði Lilju Grétarsdóttur

Harald Blöndal

Helga Ólafsson

Ríkharð Sveinsson

Samþykkt samhljóða.

11. Stefán kom með tillögu um varastjórn:

1. Þorfinnur Björnsson, 2. Páll Sigurðsson, 3. Ingvar Þór Jóhannesson 4. Daði Örn Jónsson.

12. Kosning endurskoðenda: Óbreytt frá síðasta ári: Árni Björn Jónasson og Guðmundur Halldórsson. Til vara: Kristinn B Þorsteinsson.

13. Kosning kjörbréfanefndar: Ólafur H. Ólafsson, Haraldur Baldursson og Sigurberg Elentínusson. Til vara: Georg Páll Skúlason, Jóhann Larsen og Árni Á. Árnason.

14. Kosning dómstóls S.Í.: Haraldur Blöndal, Sigurbjörn Björnsson og Ríkharður Sveinsson. Til vara: Björgvin Jónsson, Ólafur H. Ólafsson og Þráinn Guðmundsson.

15. Lagabreytingatillögur.

1) Helgi Áss flutti framsögu um breytingatillögur sínar á lögum S.Í. Hann hefur sameinast um tillögur sínar með Taflfélagi Garðabæjar varðandi 6. gr. og 12. gr. Helgi sagði að .þessar breytingar væru öryggisráðstöfun gagnvart þvi misferli sem félögin stunda núna að hafa tvær félagaskrár í gangi fyrir aðalfund S.Í. Einnig myndi þetta gera allt skýrara varðandi í hvaða félagi menn eru.

Breytingar á breytingatillögum

Lög S.Í.

6. gr. verði:

Standi aðildarfélag í gjaldfallinni skuld við sambandið hefur það ekki rétt til að eiga fulltrúa á aðalfundi. Skákdeildir í félögum geta átt aðild að sambandinu, enda hafi þá minnst 10 menn bundist slíkum samtökum. Heimilt er tveimur eða fleiri aðildarfélögum í sama landshluta að stofna með sér svæðissamband. Samþ. 29 - 10.

12. gr. verði:

Sendi svæðissamband fulltrúa á aðalfund fyrir hönd aðildarfélaga sinna skal þess getið í kjörbréfi hvaða aðildarfélög hann hefur umboð fyrir, enda liggi félagaskrá þeirra fyrir. Skáksambandið viðurkennir engan sem fullgildan félagsmann í fleiri en einu aðildarfélagi. Skipti skákmaður um félag eða hætti í því skal hann tilkynna það S.Í. á þar til gerðu eyðublaði. Rafræn skil á eyðublaðinu jafngilda pappírsskilum. S.Í. skal upplýsa gamla og nýja félag hans um þetta með sannanlegum hætti. Skákmaður, sem ekki er skráður hjá neinu félagi og hefur ekki fasta búsetu hér á landi, skal tilkynna S.Í. með sannanlegum hætti þegar hann gengur í félag. Samþ. samhljóða.

Helgi Áss gerir einnig breytingatillögu á 9. grein og 7. grein.

9. grein.

Við atkvæðagreiðslu á aðalfundi á hvert félag eitt atkvæði enda hafi það tveim vikum fyrir aðalfund sent félagaskrá með nöfnum a.m.k. 10 félagsmanna til athugunar fyrir kjörbréfanefnd. Hafi kjörbréfanefnd ekki borist félagaskrá frá félagi fær það ekki atkvæðisrétt skv. 1. mgr. Eitt atkvæði bætist við hjá félagi fyrir hverja sveit sem það sendir í Íslandsmót skákfélaga það árið. Við atkvæðagreiðslu um kjörbréf í upphafi fundar skal gilda sú regla, að hvert félag fari ekki með fleiri atkvæði en það hafði á aðalfundi árið áður. Enginn fulltrúi getur farið með meira en eitt atkvæði á fundinum. Við atkvæðagreiðslur á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða, nema um þau mál sem sérstaklega eru tilgreind í þessum lögum. Samþ. 29 - 10.

7. grein.

Reikningsár Skáksambandsins hefst 1. janúar ár hvert. Ársreikningar skulu sendir aðildarfélögum og birtir á heimasíðu sambandsins 14 dögum fyrir aðalfund. Samþ. samhljóða.

Haraldur Baldursson dró til baka breytingatillögu sína á 12. grein laga S.Í. Hann flutti svo framsögu um breytingatillögu sína á 18. grein.

18. grein skáklaga S.Í. hljómar:

Stjórn Skáksambands Íslands skal árlega skipa sérstaka mótsstjórn, sem sér um framkvæmd deildakeppninnar. Skákstjóri sker úr um lögmæti keppenda og úrskurðar önnur vafaatriði.

Lagt er til að 18. grein verði eftirfarandi:

Stjórn S.Í. skal árlega skipa sérstaka mótsstjórn sem sér um framkvæmd Íslandsmóts Skákfélaga, sker úr um lögmæti keppenda og úrskurðar um önnur vafaatriði.

Jóhann H. Ragnarsson kom upp fyrir hönd TG og flutti framsögu um tillögur TR og Helga Áss sem Helgi hafði áður flutt framsögu um.

Daði Örn Jónsson kom í pontu og flutti framsögu fyrir hönd "áttmenninganna" um lagabreytingatillögur þeirra á 17. grein skáklaga S.Í. Hann benti á að hér væri mun vægar tekið á þáttttöku útlendinga heldur en í nágrannalöndum.

Tillöguflytjendur:

Daði Örn Jónsson, Helli

Gunnar Björnsson, Helli

Gylfi Þórhallsson, SA

Haraldur Baldursson, TK

Helgi Ólafsson, Helli

Páll Sigurðsson TG

Rúnar Sigurpálsson SA

Sigurður Daði Sigfússon TR

17. gr. skáklaga hljómar nú:

Keppendur skulu vera fullgildir félagsmenn þeirra taflfélaga, sem þeir tefla fyrir. Enginn hefur rétt til að tefla fyrir nema eitt félag, sjá þó ákv. 16. greinar um svæðissambönd.

Tillöguflytjendur leggja til að við 17. grein bætist þessi setning:

"Ekkert lið má beita fleiri erlendum ríkisborgurum en íslenskum í hverjum leik. Erlendir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi skulu þó flokkast sem Íslendingar hvað þetta varðar."

Páll Agnar Þórarinsson kom með fyrirspurn til Helga Áss varðandi lagabreytingatillögu hans á 12. grein. Páll spurði hvort rafræn félagaskipti væru örugg.

Helgi Áss svaraði því að netið væri öruggt því tilkynna þyrfti bæði gamla og nýja félaginu um félagaskiptin.

Ólafur H. Ólafsson kom upp og gerði athugasemd við breytingatillögur TG á reglugerð S.Í. um Íslandsmót. Hann taldi reglugerðarbreytingar ekki samræmast lögum S.Í.

Stefán Baldursson, nýkjörinn forseti, tók til máls og sagði að e.t.v. væri best að endurskoða allar lagabreytingartillögurnar varðandi Íslandsmót skákfélaga og láta starfshóp vinna breytingu á ÍS á nýjum grundvelli.

Haraldur Blöndal kom í pontu og sagðist taka undir með nýkjörnum forseta hvað varðar að fresta umræðu um Íslandsmót skákfélaga. Hann taldi að þetta mál ætti ekki að afgreiða fyrr en á framhaldsaðalfundi.

Ath. Daði Örn Jónsson gerði orðalagsbreytingu á tillögu 8-menninganna, þó hún breytist ekki efnislega. Breytt tillaga hljóðar svo:

17. grein:

Í hverri viðureign skal a.m.k. helmingur liðsmanna hverrar sveitar vera íslenskir ríkisborgarar eða hafa lögheimili sitt á Íslandi.

Hér var gert fundarhlé:

Stefán Baldursson kom með tillögu um að fresta afgreiðslu á breytingartillögum við 3. kafla skáklaga. Starfshópur myndi fara yfir 3. kaflann og svo yrði haldinn framhaldsaðalfundur um það eigi síðar en 1. júní á þessu ári. Forseti sagði þetta einungis gert af sinni hálfu til að fá úr því skorið hvort menn héldu að þeir hefðu gert fyllilega upp hug sinn eður ei.

Helgi Áss Grétarsson fjallaði um lagabreytingartillögu sína á 6. grein. Helgi sagði félagsgjald S.Í. draga kraft úr félögum, taka peninga frá þeim að óþörfu auk þess sem það kemur í veg fyrir fjáröflun félaganna. Helgi fjallaði einnig um lagabreytingartillögu sínar á 12. grein. Hann taldi að fjöldi liða sem félag sendi í Íslandsmót skákfélaga endurspeglaði mjög vel starfsemi þess.

Hrafn Jökulsson sagði að félagsgjöldin væru að miklu leyti blóðpeningar, en samt fyndist honum slík skattheimta ætti rétt á sér því félögin stæðu jú saman að Skáksambandinu.

Grein 6 og 9 bornar upp til atkvæða. Tillagan samþykkt 24-10.

Grein 7 borin upp til atkvæða. Samþ. samhljóða.

Grein 12 lesin upp og borin upp til atkvæða. Tillagan samþykkt samhljóða.

Fundarstjóri leggur til að eftirfarandi tillaga verði tekin fyrir:

Lagabreytingatillaga frá stjórn Skáksambands Íslands lögð fram á aðalfundi 26. apríl 2003.

Stjórn Skáksambands Íslands leggur til að nafni Deildakeppni Skáksambands Íslands verði, í Skáklögum Skáksambands Íslands, breytt í Íslandsmót skákfélaga.

Breytingin verður á eftirtöldum stöðum í Skáklögum Skáksambands Íslands:

1. Í fyrirsögn 3. kafla, sem verður: Íslandsmóts skákfélaga.

2. Í upphafi 15. gr., sem verður þannig: Stjórn Skáksambands Íslands gengst árlega fyrir Íslandsmóti skákfélaga.

3. Í 18. gr., sem þá mun hljóða svo: Stjórn Skáksambands Íslands skal árlega skipa sérstaka mótsstjórn, sem sér um framkvæmd Íslandsmóts skákfélaga.

4. Í 19. gr., sem eftir breytingu hljóðar svo: Skáksamband Íslands setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd Íslandsmóts skákfélaga.

Stjórn Skáksambands Íslands

Þá var tekin fyrir tillaga frá nýkjörnum forseta S.Í. um breytingatillögu við framkomna tillögu um breytingar á reglugerð um Íslandsmót skákfélaga.

Breytingatillaga

Aðalfundur Skáksambands Íslands haldinn 26. apríl 2003 samþykkir að fresta afgreiðslu tillagna um breytingar á III. kafla skáklaga Skáksambands Íslands til framhaldsaðalfundar, sem haldinn verður eigi síðar en 1. júní n.k.

Jafnframt felur fundurinn stjórn Skáksambands Íslands að skipa 5 manna nefnd til að yfirfara framkomnar tillögur og gera á þeim breytingar ef þörf þykir. Nefndin skal skila tillögum sínum eigi síðar en 15. maí n.k. Forseti Skáksambands Íslands skal vera formaður nefndarinnar en hinir valdir þannig að sem flest sjónarmið komi fram.

Helgi Ólafsson tók til máls og studdi fram komna tillögu forseta. Daði Örn Jónsson lagði til að sín vegna mætti senda breytingartillögur til sérstaks vinnuhóps en taka mætti fyrir tillöguna um takmörkun erlendra skákmanna.

Hrafn Jökulsson tók til máls og ræddi um breytingartillögur forsetans og skoðun Daða Arnar Jónssonar. Studdi hann tillögu Stefáns Baldurssonar.

Hrannar Jónsson tók síðan til máls og vitnaði í 2. gr. laga S.Í. um að félög ættu að standa saman. Hann studdi tillögu forseta.

Páll Sigurðsson andmælti framkominni breytingartillögu og vildi ekki svæfa það í einhverri nefnd. Hrannar Björn ræddi um hina miklu uppsveiflu sem verið hefur í Íslandsmóti skákfélaga. Hann studdi breytingartillögu forseta.

Helgi Ólafsson mótmælti að verið væri að svæfa málið með því að setja málið í nefnd. Kristján Örn Elíasson spurði hvers vegna ekki væri búið að skipa þessa nefnd fyrir löngu. Ekki ætti að draga það lengur að taka ákvörðun í þessu máli. Hrafn ítrekaði einnig að ekki væri verið að svæfa málið með því að setja það í nefnd.

Breytingatillaga forseta borin upp til atkvæða. Tillagan felld 21 - 19.

Þá var tekið til við lagabreytingar um 15-19 gr. skáklaga S.Í.

Hrafn Jökulsson kvaddi sér hljóðs og ræddi um niðurstöðu atkvæðagreiðslu um breytingartillögu forseta sem féll hér á undan. Í lok ræðu sinnar lýsti hann því yfir að fulltrúar Hróksins myndu yfirgefa fundinn sem þeir og gerðu.

Helgi Áss kynnti lagabreytingartillögur um 15-19 greinar.

15. grein.

Stjórn Skáksambands Íslands gengst árlega fyrir Íslandsmóti skákfélaga. Keppnin er sveitakeppni og eiga öll skuldlaus taflfélög eða svæðasambönd innan S.Í. þátttökurétt. Stjórn S.Í. skal ákveða keppnisdaga og þátttökugjöld fyrir 1. september ár hvert. Samþ með þorra atkvæða.

16. grein.

Keppninni skal skipt í fjórar deildir. Efsta sveit í 1. deild er sigurvegari keppninnar. Fjöldi vinninga skal ráða úrslitum um endanlega röð sveita. Verði vinningar jafnir, skulu liðsstig (matchpoints) ráða. Hvert félag á rétt á að senda svo margar sveitir til keppninnar sem það óskar. Þó mega ekki vera fleiri en tvær sveitir frá nokkru félagi í fyrstu deild og ekki fleiri en fjórar samanlagt í fyrstu og annarri deild. Þó er félögum sem hafa með sér svæðissamband, heimilt að sameinast um eina eða fleiri sveitir. Samþ. með þorra atkv. - 1.

17. grein.

8 lið skulu vera í tveim efstu deildunum. Stjórn S.Í. hefur rétt til að fjölga eða fækka liðum í 3. og 4. deild þyki henni ástæða til. Efsta lið í annarri og þriðju deild færist upp í lok hvers keppnistímabils en neðsta lið fyrstu og annarrar deildar færist niður. Tvo efstu lið 4. deildar færast upp í lok hvers keppnistímabils en tvö neðstu lið 3. deildar færast niður. Samþ. þorri - 1.

18. grein.

Skipti skákmaður um félag eða hætti í því skal hann tilkynna það með ábyrgðarbréfi til S.Í. S.Í. skal upplýsa gamla og nýja félag hans um þetta með sannanlegum hætti. Skákmaður, sem ekki er skráður hjá neinu félagi og hefur ekki fasta búsetu hér á landi, skal tilkynna S.Í. með sannanlegum hætti þegar hann gengur í félag. Skákmaður getur ekki teflt fyrir sitt nýja félag í Íslandsmóti skákfélaga nema hann hafi sent ábyrgðarbréfið eða tilkynninguna minnst 20 dögum fyrir keppnina. Dregin til baka.

18. grein.

Félög sem hyggjast taka þátt í Íslandsmóti skákfélaga skulu minnst 14 dögum fyrir keppnina skila félagaskrá til S.Í. Á félagaskrám skulu tilgreind nöfn, heimilisföng og kennitölur félagsmanna. Aðeins þeir sem eru á skránni teljast löglegir með viðkomandi félagi í Íslandsmótinu (fyrri - og seinni hluta). Enginn hefur rétt til að tefla fyrir nema eitt félag, sjá þó ákv. 16. greinar um svæðissambönd. Sé sami maður á félagaskrá tveggja eða fleiri félaga skal mótsstjórn strika hann út af báðum eða öllum félagaskrám þar til leiðrétting fæst. Fáist ekki leiðrétting viku fyrir keppnina telst skákmaðurinn ekki löglegur með neinu félagi. Samþ. breytt, sjá síðar.

19. grein

Keppendur skulu vera fullgildir félagsmenn þeirra taflfélaga sem þeir tefla fyrir. Skákmanni, sem teflt hefur í neðri deild, er hvenær sem er heimilt í sömu keppni að tefla í efri deildum fyrir félag sitt. Skákmanni er óheimilt að tefla í neðri deild hafi hann áður í sömu keppni teflt í efri deild. Innan sömu sveitar skal borðaröð haldast óbreytt. Komi lið ekki til keppni án orsaka tapar það skákum á öllum borðum. Komi slíkt fyrir tvisvar skal liðið dæmt úr keppninni. Samþ. samhljóða.

20. grein.

Stjórn Skáksasmbandsins skal árlega skipa sérstaka mótsstjórn, sem sér um framkvæmd mótsins og sker úr um lögmæti keppenda. Taki ólöglegur keppandi þátt í keppninni skal mótsstjórn úrskurða skák hans tapaða án kröfu. Úrskurðurinn skal falla innan tveggja sólarhringa frá upphafi þeirrar umferðar sem keppandinn tók þátt í. Úrskurði mótsstjórnar er hægt að skjóta til Dómstóls S.Í. svo og einnig ef mótsstjórn hafi látið undir höfuð leggjast að dæma skák ólöglegs keppanda tapaða. Slík erindi eiga að hafa borist dómstólnum eigi síðar en fjórum sólarhringum frá upphafi þeirrar umferðar sem keppandinn var á meðal þátttakenda. Dómur Dómstóls S.Í. skal liggja fyrir eigi síðar en 5 sólarhringum eftir að erindið barst. Skákstjóri úrskurðar um önnur vafaatriði. Samþ. samhljóða.

21. grein.

Stjórn S.Í. setur reglugerð um nánari framkvæmd Íslandsmóts skákfélaga. Samþ. samhljóða.

Jóhann Ragnarsson kynnti breytingartillögur við tillögur Helga Áss. Fundarstjóri úrskurðaði um að tillaga þeirra um leigu á leikmönnum væri of seint komin fram.

Hverju félagi er heimilt að fá 2 skákmenn leigða frá öðru félagi. Ekki er heimilt að leigja skákmenn frá félagi sem hefur A lið sitt í sömu deild og A lið leigutaka. Skákmaður sem er leigður getur einungis keppt fyrir það félag sem leigir hann. Vísað frá - of seint borin fram.

Breytingatillaga TG.

5. gr.

Hver sveit skal skipuð sex keppendum í öllum deildum. Fellt 21-7.

Raða skal innan sveitanna eftir skákstyrkleika þannig að sterkasti maður skal tefla á fyrsta borði o.s.frv. Óheimilt er að breyta röð keppenda en nýir keppendur geta komið inn í röðina hvar sem er. Keppanda er hvenær sem er heimilt að tefla í næstu deild fyrir ofan sé félag hans þar með sveit. Um leið missir hann rétt til að tefla í deildinni fyrir neðan. Keppanda sem teflt hefur a.m.k. eina skák í fyrstu deild er óheimilt að tefla í annarri, þriðju og/eða fjórðu deild á sama keppnistímabili. Keppanda sem teflt hefur a.m.k. eina skák í annarri deild er á sama hátt óheimilt að tefla í þriðju og/eða fjórðu deild á sama keppnistímabili. Keppanda sem teflt hefur a.m.k. eina skák í þriðju deild er á sama hátt óheimilt að tefla í fjórðu deild á sama keppnistímabili. Einnig er félagi óheimilt að flytja keppendur á milli sveita í sömu deild. Engin keppandi má tefla fleiri en eina skák í sömu umferð. Vísað frá skv. úrskurði fundarstjóra.

Fundarstjóri úrskurðaði að það sem eftir stendur af breytingartillögum TG væri 1. mgr. 5. gr. reglugerðar S.Í. sem er breyting á 1. mgr. 17. greinar tillögu Helga Áss. Breytingartillagan felld 21-7.

Helgi Áss kynnti tillögur sínar og dregur breytingatillögu v. 18. gr. til baka. 19. grein verður að 18. grein, 20. að 19., 21. að 20. og 22. að 21. grein.

Hann lagði fyrir breytingartillögu að 18. grein.

15.- 17. grein samþykktar með þorra atkvæða gegn einu.

18. grein borin upp svobreytt:

Verði 12. grein laga S.Í. samþykkt verður tillagan um 18. gr. skáklaga dregin til baka. 19. gr. sem þá verður 18. gr. verður svohljóðandi:

Tilkynning skákmanns skv. 12. gr. laga S.Í. skal hafa verið send 20 dögum fyrir mótið ella getur hann ekki teflt fyrir sitt nýja félag í því. Félög sem hyggjast taka þátt í Íslandsmóti skákfélaga skulu minnst 14 dögum fyrir keppnina skila félagaskrám til S.Í. Á félagaskrám skulu tilgreind nöfn, heimilisföng og kennitölur félagsmanna. Aðeins þeir sem eru á skránni teljast löglegir með viðkomandi félagi í Íslandsmótinu (fyrri-og seinni hluta). Enginn hefur rétt til að tefla fyrir nema eitt félag, sjá þó ákv. 16. greinar um svæðissambönd. Sé sami maður á félagaskrá tveggja eða fleiri félaga skal mótsstjórn strika hann út af báðum eða öllum félagaskrám þar til leiðrétting fæst. Fáist ekki leiðrétting viku fyrir keppnina telst skákmaðurinn ekki löglegur með neinu félagi. Samþ. svobreytt með öllum gr. atkvæðum.

Daði Örn lagði fram breytt orðalag í 17. - 19. gr.: Í hverri viðureign skal a m.k. helmingur liðsmanna hverrar sveitar vera íslenskir ríkisborgarar eða hafa lögheimili sitt á Íslandi.

Kristján Örn lagði fram eftirfarandi tillögu við 19. gr. skáklaga.

Breytingatillaga við breytingatillögu

17. gr. skáklaga Íslands - verður 19. gr.

Legg til að við 17. grein bætist við þessi setning: Ekkert lið má beita fleiri erlendum ríkisborgurum en íslenskum í hverri umferð. Erlendir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi undanfarið eitt ár skulu þó flokkast sem íslenskir ríkisborgarar hvað þetta varðar.

Kristján Örn Elíasson

Sigurður Áss kvaddi sér hljóðs og gerði breytingartillögu við tillögu Daða Arnar.

19. grein. Í hverri viðureign skal helmingur liðsmanna hverrar sveitar vera íslenskur ríkisborgari eða hafa verið með lögheimili sitt á Íslandi um undanfarið ár. Samþ. 25-7.

19. grein borin upp í heild sinni. Samþykkt samhljóða.

Tillögur 20 - 21 gr. bornar upp og samþykktar.

16. Gjaldkeri kynnti fjárhagsáætlun. Árgjald sambandsins fellur niður og liðurinn sérstök fjáröflun hækkar sem því nemur. Fjárhagsáætlun borin upp og samþykkt samhljóða.

17. Önnur mál.

Kristján Örn tók til máls og ræddi um 1. umferð í Íslandsmóti skákfélaga þar sem A og B lið tefla saman. Ræddi hann einnig um Skákþing Reykjavíkur og Evrópukeppni taflfélaga.

Ólafur H. Ólafsson mótmælti því að verið væri að ræða um innanfélagsmál á aðalfundi S.Í.

Jóhann Ragnarsson mótmælti úrskurði fundarstjóra um frávísun á breytingartillögu TG. TG var ekki mögulegt að leggja breytingar á tillögu Helga Áss fyrir fundinn með 30 daga fyrirvara þar sem tillögurnar voru ekki fyrirliggjandi. Þá ræddi Jóhann um kvennaskák. Jóhann lagði fram eftirfarandi ályktun til stjórnar S.Í. um reglugerð um Íslandsmót skákfélaga: Aðalfundur S.Í. beinir því til stjórnar S.Í. að eftirfarandi atriði verði í reglugerð Íslandsmóts skákfélaga:

Hverju félagi er heimilt að fá 2 skákmenn leigða frá öðru félagi. Ekki er heimilt að leigja skákmenn frá félagi sem hefur A lið sitt í sömu deild og A lið leigutaka. Skákmaður sem er leigður getur einungis keppt fyrir það félag sem leigir hann. Tillagan felld 11-9.

Nýkjörinn forseti S.Í. tók til máls sog ræddi almennt um framtíðina. Hann taldi að skapa ætti félögunum góð skilyrði til að starfa og að sambandið ætti að sinna sínum málum vel. Hann telur að afreksmannastefna og almenn starfsemi eigi að fara vel saman og leggja eigi áherslu á barna og unglingastarf sem og kvennastarf.

Stefán þakkaði í lokin fráfarandi forseta störf og fráfarandi stjórn og sleit fundi kl. 15.30.

Ríkharður Sveinsson.

 
Skáksamband Íslands :: Faxafen 12 :: 108 - Reykjavík :: s. 568-9141 :: fax: 568-9116 :: netfang: siks@simnet.is :: veffang: www.chess.is