| Dómstóll Skáksambands
Íslands
20. febrúar 2003
Mál nr. 1/2003
Taflfélag Garðabæjar
gegn
Skákfélaginu Hróknum
Mál þetta dæma aðalmaðurinn
Ríkharður Sveinsson og varamennirnir Ólafur
H. Ólafsson og Björgvin Jónsson.
Með kæru til Dómstóls S.Í.,
dagsettri 27. janúar s.l. áfrýjar
sóknaraðili úrskurði skákstjóra
Íslandsmóts skákfélaga
þann sama dag, þar sem hann vísar
frá kæru sóknaraðila Taflfélags
Garðabæjar á hendur varnaraðila
Skákfélaginu Hróknum.
I. I.
Kæra sóknaraðila var send skákstjóra
Íslandsmóts Skákfélaga,
Ólafi Ásgrímssyni, þann
18. október 2002. Varðar kæran efnislega
að varnaraðili hafi í 2. umferð
Íslandsmóts Skákfélaga
2002-2003 látið Ingvar Jóhannsson,
er skráður var 3. borðs maður í
b-sveit varnaraðila, tefla á 8. borði
í a- sveit félagsins og um leið
fært hann upp fyrir bæði 1. og 2.
borðs mann í b- sveitinni, sem í
sömu umferð tefldu fyrir b- sveit varnaraðila.
Telur sóknaraðili þetta brjóta
gegn 5. gr. reglugerðar Skáksambands Íslands
um Íslandsmót skákfélaga.
II. II.
Kæru sóknaraðila, dags. 18. október
2002, var réttilega beint til skákstjóra
Íslandsmóts Skákfélaga,
er skv. 18. gr. skáklaga Skáksambands
Íslands sker úr um lögmæti
keppenda og úrskurðar um önnur þau
vafaatriði er upp koma við framkvæmd
Íslandsmóts Skákfélaga.
Því bar skákstjóra að
taka efnislega afstöðu til kærunnar
í úrskurði sínum en ekki
vísa henni frá. Samkvæmt þessu
verður hinn kærði úrskurður
því úr gildi felldur og lagt fyrir
skákstjóra að taka efnislega afstöðu
til kærunnar í nýjum úrskurði.
Úrskurðarorð:
Hinn kærði úrskurður er felldur
úr gildi.
Lagt er fyrir skákstjóra Íslandsmóts
skákfélaga 2002-2003 að úrskurða
að nýju um kæru sóknaraðila,
Taflfélags Garðabæjar, á hendur
varnaraðila, Skákfélaginu Hróknum,
dags. 18. október 2002, þar sem tekin
verði efnisleg afstaða til hennar.
|