| Dómstóll Skáksambands
Íslands
17. desember 2002
Mál nr. 2/2002
Taflfélag Garðabæjar
gegn
Skákfélaginu Hróknum
Mál þetta dæma aðalmennirnir
Helgi Áss Grétarsson, Gunnar Björnsson
og Ríkharður Sveinsson. Með kæru
dagsettri 28. nóvember 2002 krafðist sóknaraðili
að varnaraðili myndi sæta viðurlögum
að mati dómsins skv. 13.gr. laga Skáksambands
Íslands fyrir að hafa hætt þátttöku
í bikarkeppni sóknaraðila og Íslenskra
aðalverktaka (ÍAV).
I.
Hinn 18. október sl. kærði sóknaraðili
varnaraðila til skákstjóra Íslandsmóts
skákfélaga fyrir að hafa stillt
upp ólöglegu liði í þeirri
keppni. 28.október dróg varnaraðili
sig út úr bikarkeppni sóknaraðila
og ÍAV. Sú ákvörðun
var rökstudd svo að varnaraðili taldi
kæruna tilefnislausa og sýna ,,afgerandi
afstöðu sóknaraðila til sín’’.
Sóknaraðili taldi skýringarnar ekki
gildar og lagði fram kæru vegna þessa
28. nóvember sl.
II.
Í 13. gr. laga Skáksambands Íslands
er kveðið á um, að framkoma sem
sé andstæð almennu velsæmi
og sönnum íþróttaanda, geti
varðað viðurlögum sem Dómstóll
S.Í. sé einn bær um að ákveða.
Að hætta í skákmóti
án gildra skýringa er nefnt sem dæmi
um slíka framkomu.
Málið veltur á hvort skýring
varnaraðili sé gild eður ei. Telja
verður að svo hafi ekki verið. Þótt
sóknaraðili hafi neytt lögmæltra
úrræða, til að fá skorið
úr um hvort varnaraðili hafi haft ólöglega
keppendur í fyrri hluta Íslandsmóts
skákfélaga, veitti það varnaraðila
ekki rétt til að hætta þátttöku
í skákmóti. Varnaraðili hefur
af þessum sökum gerst brotlegur á
13.gr. laga S.Í.
Þetta er fyrsta brot varnaraðila á
13.gr. laga S.Í.. Með hliðsjón
af þessu þykir rétt að varnaraðili
sé veitt áminning, sbr. 1.ml. 13.gr.
laga S.Í..
Dómsorð
Skákfélaginu Hróknum er veitt
áminning.
|