| Dómstóll Skáksambands
Íslands
17. desember 2002
Mál nr. 3/2002
Björn Þorfinnsson
gegn
Halldóri Pálssyni
Mál þetta dæma aðalmennirnir:
Helgi Áss Grétarsson, Gunnar Björnsson
og Ríkharður Sveinsson. Með kæru
dagsettri 8. desember 2002 krafðist sóknaraðili
að úrslit í skák hans og
varnaraðila í afmælismóti
Taflfélags Snæfellsbæjar, sem fram
fór 7. desember, yrðu breytt úr
jafntefli í vinning fyrir sig.
I.
Atvik málsins eru þau að í
síðustu umferð mótsins, en þá
var tefld atskák, hafði varnaraðili
yfirburðartafl en tími hans var af skornum
skammti. Eins og fram kemur í kæru sóknaraðila
ákvað hann að tefla upp á tímaskort
andstæðingsins og hafnaði m.a. jafnteflisboði
varnaraðila. Töluverður vandræðagangur
var með klukkuna, sem keppendur notuðust við,
og varð að útvega nýja klukku.
Þá var ákveðið að
varnaraðili
ætti 8 sekúndur eftir en sóknaraðili
hafði nægan tíma eftir. Þegar
varnaraðili átti eina sekúndu eftir
krafðist hann jafnteflis en án þess
að stöðva skákklukkuna. Í
sömu mund og jafntefliskrafan var sett fram féll
varnaraðili á tíma og krafðist
þá sóknaraðili vinnings. Eftir
að hafa frestað ákvörðun dæmdi
skákstjóri skákina jafntefli
en í lokastöðunni hafði sóknaraðili
a-peð gegn a- og b- peðum varnaraðila.
II.
Skv. 13.gr. laga S.Í. skal stjórn S.Í.
setja reglur um valdssvið dómstólsins
í samráði við hann og hefur
það verið gert. Í reglugerðinni
er kveðið á um lögsögu dómstólsins
og kemur þar m.a. fram að eingöngu
er hægt skjóta úrskurðum skákstjóra
til dómstólsins þegar um er að
ræða mót sem reiknuð eru til
alþjóðlegra skákstiga, sbr.
2.mgr. 1.gr. reglugerðarinnar. Þetta reglugerðarákvæði
gengur í berhögg við 2. gr. skáklaga
S.Í. en sú grein á hinsvegar
einungis við um mót sem haldin eru á
vegum Skáksambands Íslands. Mótið,
sem skákin fór fram í, var ekki
reiknað til alþjóðlegra skákstiga
og var ekki á vegum S.Í. Óhjákvæmilegt
er því að vísa kærunni
frá, sbr. 2.mgr. 1.gr. reglugerðar um Dómstól
Skáksambands Íslands.
Dómsorð:
Kærunni er vísað frá.
|