| Lög Skáksambands
Íslands
1. grein.
Skáksamband Íslands er landssamband
íslenskra skákfélaga. Það
skal vera aðili að þeim alþjóðlegu
samtökum skákmanna sem aðalfundur
þess ákveður hverju sinni. Heimili
sambandsins og varnarþing er í Reykjavík.
2. grein.
Markmið skáksambandsins er:
I. Að vera samtakaheild og yfirstjórn
allra skákfélaga á Íslandi.
II. Að efla íslenska skáklist og
standa vörð um hagsmuni íslenskra
skákmanna innan lands og utan.
III. Að efla og treysta samskipti sambandsfélaganna
innbyrðis.
IV. Að greiða fyrir samskiptum við skákmenn
annarra þjóða.
3. grein.
Stjórn skáksambandsins skipa sjö
menn, forseti, varaforseti, ritari, gjaldkeri, skákritari,
æskulýðs-fulltrúi og meðstjórnandi.
Stjórnin er kosin á aðalfundi sambandsins
þannig, að fyrst er kosinn forseti, en síðan
sex meðstjórnendur í einu lagi.
Á sama hátt skal kjósa fjóra
menn í varastjórn. Kjörtímabil
skal vera eitt ár.
Stjórnin skiptir með sér starfsheitum
og verkefnum.
4. grein.
Forseti boðar til stjórnarfunda og stýrir
þeim. Í forföllum forseta gegnir
varaforseti störfum hans. Stjórnarfundur
er lögmætur ef a.m.k. fjórir stjórnarmenn
eða varastjórnarmenn sitja hann. Verði
ágreiningur á stjórnarfundum
skal bera afgreiðslu málsins undir atkvæði.
Ef atkvæði falla jöfn ræður
atkvæði forseta úrslitum. Stjórnin
ræður málefnum sambandsins, öðrum
en þeim sem aðalfundur einn hefur ákvörðunarrétt
um.
5. grein.
Stjórn Skáksambands Íslands
getur veitt félögum inngöngu í
sambandið. Félag telst þó
ekki fullgildur aðili þess fyrr en inntakan
hefur hlotið samþykki aðalfundar. Félög
sem sótt hafa um inntöku í S.Í.
og hlotið samþykki stjórnarinnar
til þess skulu fá aðgang að mótum
S.Í. fram að næsta aðalfundi.
Fulltrúar þeirra mega sitja aðalfund
með tillögurétti og málfrelsi
uns fjallað hefur verið um inngöngu þeirra
á fundinum.
Ekki má víkja aðildarfélagi
úr sambandinu nema með samþykki 2/3
greiddra atkvæða á aðalfundi.
6.grein.
Standi aðildarfélag í gjaldfallinni
skuld við sambandið hefur það ekki
rétt til að eiga fulltrúa á
aðalfundi. Skákdeildir í félögum
geta átt aðild að sambandinu, enda
hafi þá minnst 10 menn bundist slíkum
samtökum. Heimilt er tveimur eða fleiri aðildarfélögum
í sama landshluta að stofna með sér
svæðissamband.
7. grein.
Reikningsár Skáksambandsins hefst 1.
janúar ár hvert.. Ársreikningar
skulu sendir aðildarfélögum og birtir
á heimasíðu sambandsins 14 dögum
fyrir aðalfund.
8. grein.
Aðalfundur er æðsta vald sambandsins.
Hann skal haldinn fyrir 1. júní ár
hvert. Til hans skal boða bréflega a.m.k.
30 dögum fyrir fundinn. Fundurinn telst lögmætur
ef rétt er til hans boðað. Á
fundinum eiga sæti, auk stjórnarinnar,
fulltrúar tilnefndir af aðildarfélögunum.
9. grein.
Við atkvæðagreiðslu á aðalfundi
á hvert félag eitt atkvæði
enda hafi það tveim vikum fyrir aðalfund
sent félagaskrá með nöfnum
a.m.k. 10 félagsmanna til athugunar fyrir kjörbréfanefnd.
Hafi kjörbréfanefnd ekki borist félagaskrá
frá félagi fær það ekki
atkvæðisrétt skv. 1.mgr. Eitt atkvæði
bætist við hjá félagi fyrir
hverja sveit sem það sendir í Íslandsmót
skákfélaga það árið.
Við atkvæðagreiðslu um kjörbréf
í upphafi fundar skal gilda sú regla,
að hvert félag fari ekki með fleiri
atkvæði en það hafði á
aðalfundi árið áður. Enginn
fulltrúi getur farið með meira en eitt
atkvæði á fundinum. Við atkvæðagreiðslur
á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti
atkvæða, nema um þau mál sem
sérstaklega eru tilgreind í þessum
lögum.
10. grein.
Verkefni aðalfundar skulu vera þessi:
1. Forseti Skáksambandsins setur fundinn
og lætur kjósa fundarstjóra og
einn til vara og tvo fundarritara sem taka þegar
til starfa.
2. Kynnt fundargerð síðasta aðalfundar.
3. Kjörbréfanefnd gerir grein fyrir
kjörbréfum og kannar fundarsókn.
4. Forseti flytur skýrslu stjórnar.
5. Gjaldkeri gerir grein fyrir reikningum síðasta
árs.
6. Umræður um störf stjórnarinnar
og afgreiðsla reikninga.
7. Inntaka nýrra félaga.
8. Lögð fram fjárhagsáætlun
fyrir næsta starfsár og tillaga stjórnarinnar
um árgjöld til sambandsins. Almennar umræður
og afgreiðsla.
9. Kosning stjórnar og varastjórnar.
10. Kosnir tveir endurskoðendur og einn til
vara.
11. Kosnir 3 menn í kjörbréfanefnd
og 3 til vara, til að athuga kjörbréf
fyrir næsta aðalfund.
12. Kosnir 3 menn í dómstól
Skáksambands Íslands og þrír
til vara.
13. Umræður og breytingar á lögum
og keppnisreglum Skáksambandsins.
14. Önnur mál.
Röð verkefna má aðeins breyta
með samþykki aðalfundar.
11. grein.
Aðalfundur getur kosið heiðursfélaga
Skáksambands Íslands eftir tillögu
sambandsstjórnar.
12.grein.
Sendi svæðissamband fulltrúa á
aðalfund fyrir hönd aðildarfélaga
sinna skal þess getið í kjörbréfi
hvaða aðildarfélög hann hefur
umboð fyrir, enda liggi félagaskrá
þeirra fyrir. Skáksambandið viðurkennir
engan sem fullgildan félagsmann í fleiri
en einu aðildarfélagi. Skipti skákmaður
um félag eða hætti í því
skal hann tilkynna það S.Í. á
þar til gerðu eyðublaði. Rafræn
skil á eyðublaðinu jafngilda pappírsskilum.
S.Í. skal upplýsa gamla og nýja
félag hans um þetta með sannanlegum
hætti. Skákmaður, sem ekki er skráður
hjá neinu félagi og hefur ekki fasta
búsetu hér á landi, skal tilkynna
S.Í. með sannanlegum hætti þegar
hann gengur í félag.
13. grein.
Brot á lögum og reglum Skáksambandsins,
svo og framkoma sem andstæð er almennu velsæmi
og sönnum íþróttanda, eins
og að hætta án gildra skýringa
í skákmóti, hafa uppi svigurmæli
um skákfélaga og annað þessu
líkt, getur varðað refsingu annað
hvort áminningu eða banni við keppni
í einstöku móti eða mótum
í tiltekinn tíma. Dómstóll
Skáksambands Íslands skal hafa fullnaðarúrskurðarvald
um viðlög við brotum á ákvæði
þessu. S.Í. skal í samráði
við dómstólinn setja reglugerð
um störf og valdsvið dómstólsins.
14. grein.
Breytingar á lögum og skáklögum
sambandsins verða einungis gerðar á
aðalfundi, enda hafi þeirra verið getið
í fundarboði. Til að breytingar á
lögum öðlist gildi þarf samþykki
2/3 greiddra atkvæða, en til breytinga á
skáklögum nægir einfaldur meirihluti.
Allar tillögur hér að lútandi
ber að senda stjórn S.Í. með
nægum fyrirvara til þess að unnt sé
að senda þær út, stjórnum
aðildarfélaga til kynningar.
15. grein.
Lög þessi túlkar stjórn
Skáksambands Íslands.
16. grein.
Lög þessi öðlast þegar
gildi eru jafnframt úr gildi fallin eldri lög
Skáksambands Íslands.
|