|
Reglugerð fyrir Dómstól
Skáksambands Íslands
1. gr.
Dómstóll Skáksambands Íslands
er kosinn á aðalfundi Skáksambandsins
og skipa hann þrír menn og þrír
til vara. ( Æskilegt er að einn dómara
og einn varadómara sé lögfræðingur,
en hinir hafi réttindi skákdómara.)
Hlutverk dómstólsins er að úrskurða
um ágreining, er kemur upp um túlkun
á skáklögum Skáksambands
Íslands, sbr. 10. gr. þeirra laga, að
fella fullnaðarúrskurð um viðurlög
við brotum á 13. gr. laga um Skáksamband
Íslands og vera áfrýjunardómstóll
vegna úrskurða skákstjóra
í skákmótum, sem reiknuð
er til alþjóðlegra skákstiga,
um túlkun á skáklögum F.I.D.E
og skáklögum Skáksamband Íslands
sbr. 2. gr. þeirra laga.
Aðsetur dómstólsins er á
skrifstofu Skáksambands Íslands, sem
varðveitir skjöl hans og gerðarbækur.
.
2. gr.
Aðilar máls eru þessir:
1. Ef ágreiningur snýst um úrskurð
skákstjóra, eru aðilar viðkomandi
skákmenn ef um er að ræða skákmót,
en ef um er að ræða sveitakeppni, eru
það viðkomandi skákfélög.
Þó geta einstakir skákmenn ætíð
kært, ef ágreiningur snýst um
úrslit einstakra skáka. Sá aðili,
sem kærir úrskurð skákstjóra,
telst sóknaraðili, en sá, sem nýtur
úrskurðarins, telst varnaraðili. Sama
gildir, ef ágreiningur fellur undir 10. gr.
skáklaga Skáksambands Íslands.
2.Ef dómstólinn úrskurðar
um viðurlög við brotum á 13. gr.
laga um Skáksamband Íslands, skal sá,
er krefst viðurlaganna, vera sóknaraðili.
Aðilar slíks máls eru annars vegar
sá, er kæran beinist gegn, en hins vegar
sá, er telur á brotið á sér,
skákstjóri viðkomandi skákmóts,
mótshaldari eða stjórn Skáksambands
Íslands.
3. gr.
Sá, er kæra vill til dómstólsins,
skal koma skriflegri kæru í tveimur eintökum
til skrifstofu Skáksambands Íslands,
til einhvers hinna þriggja aðaldómara,
eða til aðalskákstjóra viðkomandi
skákmóts. Sá, er tekur á
móti kærunni, skal árita bæði
eintök um klukkan hvað og hvenær kæran
var móttekin, og skal kærandi fá
annað eintakið. Heimilt er að senda kæru
til skrifstofu Skáksambands Íslands
í símbréfi, með tölvupósti
eða símskeyti, og fær þá
kærandi kvittað afrit hjá skrifstofu
Skáksambands Íslands. Kæra er
gild, þótt hún berist aðeins
í einu eintaki.
Í kæru skv. 1. tl. 2. gr. skal greina:
a. Hver hin kærða ákvörðun
eða túlkun er; b. hverjir eru aðilar
málsins; c. á hvaða grunni kæran
er reist.
Í kæru skv. 2. tl. 2. gr. skal greina:
a. Hver er sakaður um brotið; b. hvert hið
meinta brot er; c. hvaða viðurlaga er krafizt;
d. á hvaða grunni kæran er reist.
4. gr.
Kærufrestur er einn sólarhringur, ef
atvik varða framkvæmd skákmóts,
sem er hafið.
Hann telst frá lokum þeirrar skákar,
er kært er út af, ef um er að ræða
einstaka skák; en ef um er að ræða
skák í skákmóti, þá
einn sólarhringur frá reglulegum lokum
þeirrar umferðar, sem skákin var
tefld í.
Ef um er að ræða aðra úrskurði
skákstjóra telst fresturinn frá
því, að sóknaraðila var
kunnugt um úrskurðinn. Ef um er að
ræða sveitakeppni, telst fresturinn frá
því, að skákstjóri
kunngerði fyrirliða eða liðsstjóra
um úrskurð sinn.
Ef um er að ræða úrskurð
mótstjórnar eða annarra telst fresturinn
á sama hátt og í 4. tl.
Ef um er að ræða aðrar kæranlegar
ákvarðanir skv. 1. tl. 2. gr. telst fresturinn
frá því að kærandi vissi
af honum.
Ef um er að ræða önnur atvik
en varða einstakar skákir eða skákmót,
sem er hafið, er kærufrestur ein vika og
telst á sama hátt og í 1. til
5. tl., nema að talið er frá lokum
þess dags, sem hin kærða athöfn
átti sér stað.
Ef um er að ræða atvik er varða
13. gr. laga um Skáksamband Íslands
skal kærufrestur vera einn mánuður.
5. gr.
Þegar kæra hefur borizt, skal dómstóllinn
koma saman eins fljótt og hægt er. Jafnframt
skal varnaraðila gert viðvart um kæruna
og honum gefinn stuttur frestur, þó ekki
skemmri en tveir tímar, til að skýra
sjónarmið sitt. Ef um úrskurð
skákstjóra er að ræða,
skal einnig gefa honum frest til að rökstyðja
skriflega úrskurð sinn. Dómurinn
getur kallað aðila fyrir og skákstjóra
til að upplýsa málið betur,
og eins getur dómurinn kallað fyrir vitni,
ef nauðsyn krefur. Ef kæran er um galla
á skákbúnaði, t.d. klukku,
skal skákstjóri taka viðkomandi
búnað til varðveizlu til að dómurinn
geti skoðað hann.
Dómstóllinn metur sjálfur um
hæfi dómara til að dæma í
máli og skal fara eftir almennum vanhæfisreglum
íslenzkra dómskapa.
Miða skal við, að úrskurður
sé felldur innan sólarhrings frá
því að kæra hefur borizt dómstólnum,
ef málið varðar 1. mgr. 4. gr.
Nú telur dómstóllinn, að
mál heyri ekki undir hann, og vísar
hann þá málinu frá.
Úrskurðir dómstólsins skulu
vera skriflegir. Halda skal sérstaka gerðarbók
um störf hans.
6. gr.
Úrskurðir dómstólsins taka
gildi frá uppsögu hans. Úrskurðurinn
skal afhentur aðilum, ef þeir eru nærstaddir,
en ella sendir þeim í pósti. Ef
um skákmót í gangi er að
ræða, skal birta úrskurðinn á
skákstað.
Úrskurðir dómstólsins eru
endanlegir.
7. gr.
Reglugerð þessi er sett af stjórn
Skáksambands Íslands með stoð
í 13. gr. laga Skáksambands Íslands
til að öðlast þegar gildi.
|