| REGLUGERÐ FYRIR ÍSLANDSMÓT
Í ATSKÁK
1. Skáksamband Íslands skal ár
hvert halda Íslandsmót í atskák.
2. Tefld skal atskák, 25 eða 30 mínútna
(á mann).
3. Stjórn S.Í. skal láta reikna
atskákstig tvisvar á ári í
byrjun júli og í byrjun janúar.
Skulu stigin kynnt jafnharðan.
UNDANRÁSIR
4. Undanrásir fara fram árlega í
ágúst eða september. Fyrir keppni
í undanrásum skulu liggja fyrir nýjustu
atskákstig. Þeir keppendur sem hafa unnið
sér til að tefla í úrslitum
þegar undanrásirnar fara fram hafa ekki
rétt til að tefla í undanrásum.
5. Undanrásir skulu fara fram á StórReykjavíkursvæðinu,
á Norðurlandi og á Vestfjörðum.
5a. Ef skákforysta á þessum stöðum
skorast undan að halda slíkt mót
skal það tilkynnt stjórn S.Í.
sem ráðstafar þá sæti
til keppni í úrslitum.
6. Stjórn S.Í. ákveður keppninsfyrirkomulag
í samráði við mótshaldara
á hverjum stað.
ÚRSLITAKEPPNIN
7. Keppendur í úrslitunum verða
16 talsins og tefla þeir eftir einvígis-útsláttar
fyrirkomulagi.
8. Í hverri umferð eru tefldar tvær
skákir (25 mín. eða 30 mín.
á mann). Sá sem hlýtur fleiri
vinninga kemst áfram.
9. Sé staðan jöfn 1:1 skal háður
bráðabani (10 mínútna eða
7 mínútna skák) og er dregið
um liti. Ef jafntefli verður, skal teflt aftur.
Í þriðju skák bráðabanahlutans
er aftur dregið um liti og svo koll af kolli.
Skákdómara er heimilt að stytta
umhugsunartíma í bráðabana
ef þörf er á, þó aldrei
meira en svo að hvor skákmaður hafi
fimm mínútur til umráða.
10. Þátttakendur í úrslitakeppninni
fá rásnúmer eftir gildandi íslensku
atskákstigum frá 1-16. Úrslitakeppnin
skal fara fram með þeim hætti að
í 1. umferð teflir nr. 1 við nr. 16,
nr. 2 við nr. 15, nr. 3 við nr. 14 o.s.frv.
Í annarri umferð teflir nr. 1 við nr.
8, nr. 2 við nr. 7 o.s.frv. Sigri sá sem
hefur lægra rásnúmer fær
hann rásnúmer þess sem hann lagði
að velli. Dæmi: Í fyrstu umferð
leggur nr. 16 nr. 1 að velli fær þá
rásnúmer 1.
11. Þátttökurétt hafa:
A: Atskákmeistari Íslands
A1: Varamaður: Annar maður á síðasta
Íslandsmóti í Atskák.
Forfallist hann eða komist inn úr undanrásum
eða á stigum skal stjórn S.Í.
velja mann til keppni í úrslitum.
B: Sex stigahæstu skákmenn landsins
samkvæmt þeim atskákstigum sem
eru í gildi við upphaf undanrásana.
B1: Hvað varðar val á varamönnum
skal farið eftir gildandi atskákstigum.
C: Sex skákmenn sem unnið hafa sér
rétt til þátttöku í
sérstöku úrtökumóti
á StórReykjavíkursvæðinu.
Monrad-stig verða látin gilda verði
menn jafnir að vinningum.
C1: Varamenn eru þeir sem koma í sex
næstu sætum í úrtökumóti
StórReykjavíkursvæðinsins.
1. varamaður telst sá sem var í
7. sæti, 2. varamaður sá sem í
8. sæti o.s.frv.
D: Sigurvegari á úrtökumóti
Norðurlands.
D1: Varamaður er sá sem varð annar
á úrtökumótinu. Forfallist
hann einning skal stjórn S.Í. velja
mann til keppnin í úrslitum.
E: Sigurvegari á úrtökumóti
Vestfirðinga.
E1: Varamaður: Annar maður á úrtökumóti
Vestfirðinga. Forfallist hann einnig skal stjórn
S.Í. velja mann til keppni í úrslitum.
F: Einn maður valinn sérstaklega af stjórn
S.Í.
12. Stefnt skal að því að úrslitakeppnin
fari fram í janúar eða febrúar
og verði leitast við að sjónvarpa
beint úrslitaeinvígi keppninnar.
13. Forfallist keppandi eftir að keppnin hefur
hafist skal taka taka sæti hans, sá sem
(síðast) féll úr keppni af
völdum þess sem forfallst hefur. (Dæmi:
A sigrar B í 1. umferð og C í 2.
umferð. Við upphaf 3. umferðar hnígur
A í ómegin. Tekur C þá
sæti hans.
14. Keppendur í úrslitakeppninni verða
að tilkynna þátttöku sína
með góðum fyrirvara, minnst þremur
vikum fyrir keppni.
15. Viku fyrir úrstlitakeppnina skal liggja
fyrir niðurröðun í 1. umferð.
16. Forfallist keppandi á síðustu
stundu skal þátttakaendum raðað
upp á nýtt samkvæmt atskákstigum,
varamaður þess sem fellur úr fær
rásnúmer samkvæmt atskákstigum
sínum.
17. Sigurvegari í úrslitakeppninni
hlýtur sæmdarheitið Atskákmeistari
Íslands.
ÚRSKURÐARVALD
18. Úrskurðarvald skal vera í höndum
skákstjóra Atskáksmóts
Íslands á hvaða stigi sem keppnin
er. Skákstjóri getur leitað samráðs
hjá forseta S.Í. í deilu- og
vafamállum. Ef aðstæður leyfa
geta þeir tekið sér sólarhrings
frest til að kveða upp úrskurð
í einstökum málum.
19. Reglur um Atskákmót Íslands
skulu kynntar aðildarfélögum S.Í.,
Félagi Stórmeistara og vera aðgengilegar
þeim sem hyggja á þátttöku
á Atskákmóti Íslands.
|