Reglur um styrkveitingar
frá SKÁKSAMBANDI ÍSLANDS til skákmanna
Markmið styrkveitinga skal vera að fjölga
titilhöfum og styðja við bakið á
ungum skákmönnum.
1. Skákmenn sem hafa 2300 stig og þeir
sem ekki hafa náð 25 ára aldri geta
fengið styrk frá S.Í. í samræmi
við reglur þessar.
2. Til þess að fá styrk þarf
viðkomandi að sýna mikla og góða
ástundun (25 skákir reiknaðar til
íslenskra og/eða alþjóðlegra
stiga á ári) og vera í fremstu
röð í sínum aldursflokki (þrír
efstu í hverjum aldursflokki, karla og kvenna
enda hafi þeir náð stigalágmörkum
Æskulýðsnefndar).
3. Alþjóðlegir meistarar geta fengið
styrk óháð aldri og stigum. Alþjóðlegir
meistarar skulu þó lúta sömu
reglum og aðrir um fjölda tefldra skáka
á ári.
4. Einnig geta þeir sem komnir eru með
einn gildan áfanga eða fleiri að alþjóðlegum
meistaratitli fengið styrk, óháð
aldri og stigum, enda hafi þeir sýnt
að þeir eigi raunhæfa möguleika
á að ná alþjóðlegum
meistaratitli og uppfylli reglur um fjölda tefldra
skáka á ári.
5. Að jafnaði getur skákmaður
ekki fengið meira en kr. 60.000.- á ári
í styrk frá S.Í.
6. Umsóknum skal fylgja æfinga-og keppnisáætlun
skákmanns auk kostnaðaráætlunar
v. viðkomandi móts. Skákmenn sem
þiggja styrki frá S.Í. skuldbinda
sig til að tefla fyrir Íslands hönd
sé eftir því leitað af S.Í.,
nema lögmæt forföll hamli.
|