| Reglur um val keppenda
á barna- og unglingaskákmót erlendis
1. Fulltrúar Íslands verða
að uppfylla eftirfarandi stigalágmörk:
Drengir:
10 ára og yngri: Lágmarksstig 1400.
11-12 ára: Lágmarksstig 1600.
13-14 ára: Lágmarksstig 1800.
15-16 ára: Lágmarksstig 2000
17-18 ára: Lágmarksstig 2200.
19-20 ára: Lágmarksstig 2300.
Stúlkur:
10 ára og yngri: Lágmarksstig 1200
11-12 ára: Lágmarksstig 1300.
13-14 ára: Lágmarksstig 1400.
15-16 ára: Lágmarksstig 1500.
17-18 ára: Lágmarksstig 1600.
19-20 ára: Lágmarksstig 1700.
2. Velja skal stigahæsta einstaklinginn (miðað
við íslensk stig) í hverjum flokki
fyrir sig, uppfylli fleiri en einn einstaklingur stigalágmörkin.
Sé stigahæsti einstaklingurinn af einhverjum
orsökum forfallaður (t.d. gefi ekki kost
á sér eða sé í banni
vegna brota á hegðunarreglum) skal velja
næststigahæsta einstaklinginn og svo koll
af kolli, svo lengi sem þessir einstaklingar
uppfylli stigalágmörkin. Uppfylli enginn
stigalágmörk viðkomandi flokks, verður
ekki sendur keppandi í þann flokk.
3. Stjórn S.Í. skal vera búin
að tilnefna keppendur á heimsmeistara-,
Evrópumeistara-og Ólympíumót
tveimur mánuðum fyrir mót. Á
önnur mót skal leitast við að
vera búið að tilnefna keppendur u.þ.b.
mánuði fyrir mót.
4. Stigalágmörk þau sem tilgreind
eru hér að framan gilda ekki um þátttöku
í Norðurlandamótum og þeim
mótum þar sem sérstök úrtökumót
eru haldin.
|