| Minningarmót um Jón Þorsteinsson | ||
| Minningarmót um Jón Þorsteinsson skákmeistara,
lögfræðing og alþingismann fer fram 28. og 29. febrúar
nk. í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Jón
sem lést árið 1994 hefði orðið áttræður
21. febrúar nk. hefði hann lifað. Afar góð verðlaun
eru í boði en heildarverðlaun nema um kr. 600.000. Það eru Taflfélag Reykjavíkur og Taflfélagið Hellir sem standa fyrir mótinu í samvinnu við syni Jóns. Gera má ráð fyrir að flestir sterkustu skákmenn þjóðarinnar taki þátt í mótinu. Ekki verður teflt frá upphafsstöðu heldur mun sérstök mótsnefnd velja 9 upphafsstöður sem tefldar verða í hverri umferð og verður upphafsstaðan kynnt í upphafi hverrar umferðar. Þetta er í fyrsta sinn hérlendis að teflt sé eftir slíku fyrirkomulagi. Alls verða tefldar 9 umferðir, korter á hvern keppanda, og verða tvær skákir tefldar í hverri umferð svo allir fá hvítt og svart með hverja upphafsstöðu. Stöðurnar verða valdar með það í huga að “teóríuhestarnir” hafi ekki of mikið forskot á aðra og jafnframt reyni á hæfileika manna til að tefla mjög ólíkar stöður. Taflið hefst á laugardeginum kl. 14 og verða þá tefldar 4 umferðir. Taflið á sunnudeginum hefst kl. 13 og verða þá tefldar 5 síðustu umferðirnar. Þátttökugjöld eru kr. 1.000 fyrir fullorðna en kr. 500 fyrir 15 ára og yngri. Skráning verður þegar nær dregur kynnt á Heimasíðu Hellis, www.hellir.is, og á Heimasíðu TR, www.skaknet.is. Æviágrip á Jóns má finna á heimasíðu Alþingis: |
||