Skáksamband Íslands    
     
  Reykjavik Rapid 2004 - english version

Skáksamband Íslands stendur fyrir atskákmóti, Reykjavik Rapid, dagana 17-21. mars. Teflt verður á veitingastaðnum NASA við Austurvöll og verður bein útsending á RÚV síðustu tvo dagana.

Meðal keppenda eru Garry Kasparov, Anatoly Karpov, Nigel Short, Alexei Dreev, Emil Sutovsky og Peter Heine Nielsen.

Boðið verður beint fjórum íslenskum stórmeisturum. Þrjú efstu sætin á Reykjavíkurskákmótinu gefa rétt til þátttöku í Reykjavik Rapid. Auk þess fær sá íslenski skákmaður sem nær bestum árangri á Reykjavíkurmótinu þátttökurétt í mótinu

Teflt verður eftir útsláttarfyrirkomulagi, 1-16, 2-15 o.sv.frv. Tímamörk 25 mín. + 5 sek. á leik.
     
  Dagskrá:  
     
  17. mars Hraðskákmót, 5 mín. + 3 sek. á leik. Lokaniðurstaðan ræður rásröð. Ef menn verða jafnir ráða Sonneborg Berger stig.
     
  18. mars 1. umferð, kl. 20.00. 16 manna úrslit
     
  19. mars 2. umferð, kl. 20.00, 8 manna úrslit
     
  20. mars 3. umferð, kl. 16.20, 4 manna úrslit
     
  21. mars Úrslit, kl. 14.45
     


  Sé staðan jöfn eftir tvær skákir, 1:1 verður gripið til bráðabana 5 3. Dregið verður um liti fyrir fyrstu skák og síðan aftur hafi tveim skákum lokið með jafntefli.

RÚV mun sjónvarpa tvo síðustu keppnisdagana.

    Miðaverð kr. 500. Alla fimm keppnisdagana 1500 kr. Ókeypis fyrir börn og unglinga 14 ára og yngri.




 
Skáksamband Íslands :: Faxafen 12 :: 108 - Reykjavík :: s. 568-9141 :: fax: 568-9116 :: netfang: siks@simnet.is :: veffang: www.chess.is